
Kristján Freyr Halldórsson
Afmælisbarn dagsins í tónlistargeiranum er eftirfarandi:
Kristján Freyr Halldórsson trommuleikari frá Hnífsdal er fjörutíu og tveggja ára gamall í dag. Kristján hefur leikið með ótal hljómsveitum, fyrst vestra en síðar á höfuðborgarsvæðinu. Meðal sveita hans má nefna Níkagagva group, Homebreakers, Geirfuglunum, Miðnes, Prinspóló, Reykjavík! og Dr. Gunna. Kristján hefur einnig komið að tónlist með öðrum hætti s.s. með tónleikahaldi og dagskrárgerð í útvarpi.