
Söngsystur frá Keflavík
Systurnar Þórdís og Hanna María Karlsdóttir skemmtu með söng víða um landið árið 1967, stundum við undirleik hljómsveita en oftar við eigin undirleik á gítar. Þær skemmtu m.a. á héraðsmótum framsóknarmanna um sumarið og komu svo fram í sjónvarpsþætti um haustið.
Þær systur komu úr Keflavík og voru aðeins tuttugu og eins og átján ára gamlar en ekki varð meira úr afrekum þeirra á tónlistarsviðinu, Hanna María varð þó síðar mun þekktari sem leikkona og hefur sungið inn á fjölda platna með tónlist úr leikhúsinu.

