
Sigurður Bjóla
Fjögur afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag:
Sigurður Bjóla Garðarsson tónlistarmaður er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Bjólan eins og hann er oft kallaður hefur að margra mati haldið sig alltof mikið til hlés í tónlistinni en hann er kunnastur fyrir framlag sitt með Spilverki þjóðanna og Stuðmönnum, hann var til að mynda hugmyndasmiðurinn að tívolí-þemanu á samnefndri plötu Stuðmanna. Sigurður starfaði síðar með Pétri Stefánssyni undir nafninu PS & Bjóla og með Valgeiri Guðjónssyni undir nafninu Jolli og Kóla en hann hefur mestmegnis síðustu árin verið við takkana í hljóðverum landsins.
Flautuleikarinn og skósmiðurinn Gísli Ferdinandsson átti þennan afmælisdag en hann lést árið 2022. Gísli fæddist á þessum degi árið 1927 og hann varð fyrstur til að útskrifast sem einleikari á flautu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, hann var jafnframt fyrsti menntaði hljóðfæraleikari lúðrasveitarinnar Svansins og var í þeirri sveit í yfir hálfa öld auk þess að gegna þar formennsku um tíma. Gísli lék um árabil með Sinfóníuhljómsveit Íslands og lék inn á nokkrar hljómplötur á ferli sínum.
Þá hefði Ingvar Jónasson fiðlu- og lágfiðluleikari átt afmæli einnig þennan dag en hann lést 2014. Ingvar fæddist 1927 á Ísafirði og var af miklum ættum tónlistarfólks, hann nam fiðlufræði sín hér heima og síðan í Bretlandi, Austurríki og Bandaríkjunum. Hann varð einn þeirra sem skipuðu fyrstu kynslóð fiðluleikara hérlendis og var þ.a.l. í Sinfóníuhljómsveit Íslands við stofnun hennar 1950, hann var einnig meðal stofnenda Musica Nova. Ingvar fluttist síðar til Svíþjóðar þar sem hann lék með Sinfóníuhljómsveitinni í Malmö og víðar, ásamt því að kenna tónlist. Eftir að hann koma aftur heim til Íslands hafði hann m.a. frumkvæði að stofnun Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna.thann llsveit en þ
Að síðustu er hér nefndur ljóðskáldið Steinn Steinarr eða Aðalsteinn Kristmundsson (1908-58). Steinn var í hópi skálda sem kennd voru við félagslegt raunsæi en síðar varð hann einn af módernistunum. Í seinni tíð hefur fjölmargt tónlistarfólk samið lög við ljóð hans og gefið út og skipta þau lög líklega hundruðum. Í þeim flokki má nefna Jón Ólafsson, Torfa Ólafsson, Bergþóru Árnadóttur, Magnús Eiríksson og Hörð Torfa. Þá hafa komið út plötur með upplestri á ljóðum Steins og m.a. með honum sjálfum.
Vissir þú að Sumargleðin undir stjórn Ragnars Bjarnasonar starfaði á árunum 1972 til 86?














































