Hljómsveit Rúts Hannessonar (um 1950-83)

Hljómsveit Rúts Hannessonar 1959

Harmonikkuleikarinn Rútur Kr. Hannesson starfrækti í nokkur skipti hljómsveitir í eigin nafni sem flestar áttu það sammerkt að leika undir gömlu dönsunum, sveitir hans störfuðu langt frá því samfleytt en tímabilið sem hljómsveitir hans störfuðu spannar á fjórða áratug.

Hljómsveit Rúts Hannessonar hin fyrsta virðist hafa verið starfrækt á Akureyri laust fyrir 1950 en sú sveit lék á Hótel Norðurlandi og var líklega tríó þeirra Ingrid Kristjánsdóttur píanóleikara, Einars Jónssonar trommuleikara og Rúts.

Árið 1952 var Rútur kominn suður aftur og var með hljómsveit sem lék þá um sumarið á dansleik í Þrastaskógi, þessi sveit fór miklu víðar um landið þetta sumar en hún var skipuð auk Rúti þeim Ragnari Bjarnasyni trommuleikara (sem þarna hafði ekki snúið sér að söngnum enn), Hrafni Pálssyni [?], Ásgeiri Sigurðssyni [?] og Erlingi Hanssyni söngvara.

Tveimur árum síðar var Rútur kominn með nýja sveit sem lék í Þórscafe um tíma en ekki er að finna neinar upplýsingar um hverjir skipuðu þessa sveit með honum. Haustið 1955 var hann svo aftur kominn með hljómsveit sem lék um tíma í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði, þar sungu með sveitinni Halldóra Guðjónsdóttir og síðar Hjalti Auðunsson og enn síðar Ragnar Lárusson en engar heimildir finnast um meðspilara Rúts í sveitinni.

Sömu sögu má segja af öðrum sveitum Rúts á sjötta og sjöunda áratugnum, að upplýsingar um meðlimi þeirra eru afar takmarkaðar – fyrir liggur að Árni Ísleifsson píanóleikari, Jóhannes Eggertsson trommuleikari, Guðmundur Steingrímsson trommuleikari og Guðmundur H. Norðdahl píanóleikari léku með sveit hans á einhverjum tímapunkti en hvenær nákvæmlega er erfitt að segja. Söngvara sveitarinnar er mun oftar getið í heimildum, þannig söng t.d. Skapti Ólafsson með hljómsveit Rúts árið 1956 og Sigurður Ólafsson árið 1969, einnig söng Rúnar Guðjónsson á einhverjum tímapunkti með sveitinni. Sveitir Rúts léku bæði töluvert á dansleikjum á landsbyggðinni og á skemmtistöðum höfuðborgarsvæðisins s.s. í Breiðfirðingabúð og Silfurtunglinu, stundum tímabundið sem húshljómsveitir.

Hljómsveit Rúts árið 1974

Undir lok sjöunda áratugarins virðist sem hljómsveitir Rúts hafi fest meiri rætur á höfuðborgarsvæðinu enda var hann þá orðinn fimmtugur og yngri tónlistarmenn höfðu tekið við keflinu á sveitaböllunum. Haustið 1969 byrjaði hann með hljómsveit á Skiphóli í Hafnarfirði sem lék þar í nokkra mánuði og í kjölfarið lék sveit hans mikið á skemmtistöðum eins og Sigtúni, veitingahúsinu við Lækjarteig, Þórscafe og Ingólfscafe allt til vors 1974 en með honum á því tímabili voru líklega þeir Guðni S. Guðnason, Garðar Jóhannesson og Svavar Halldórsson, Björn Þorgeirsson söng með sveitinni um tíma.

Sumarið 1974 hóf Hljómsveit Rúts Hannessonar að leika í Lindarbæ sem segja má að hafi verið heimavöllur gömlu dansanna, þar átti sveitin eftir að vera húshljómsveit næstu árin eða til 1978 þegar hún hvarf af sjónarsviðinu en birtist svo aftur þremur árum síðar 1981 og starfaði þar til haustsins 1982. Jakob Ó. Jónsson var söngvari sveitarinnar þar lengst af en einnig kom Björn Þorgeirsson þar við sögu sem og María Einarsdóttir áður en Grétar Guðmundsson tók við og var söngvari í um tvö ár. Þegar sveitin kom fram aftur eftir hlé haustið 1981 var Valgerður Þórisdóttir söngkona hennar. Upplýsingar um meðspilara Rúts á þessum árum eru mjög takmarkaðar og það eina sem er nokkuð öruggt er að Þorvaldur Björnsson harmonikkuleikari var með sveitinni um tíma og einnig hugsanlega Jóhannes Eggertsson trommuleikari, hann var að minnsta kosti trymbill sveitarinnar þegar hún lék í síðasta sinn (eftir því sem heimildir herma) í upphafi árs 1983.

Allar frekari upplýsingar um Hljómsveit Rúts Hannessonar væru vel þegnar.