Afmælisbörn 18. júlí 2025

Guðbergur Auðunsson

Afmælisbörn dagsins í íslensku tónlistarlífi eru ellefu talsins á skrá Glatkistunnar:

Fyrstan skal nefna bassaleikarann Harald Þorsteinsson en hann sjötíu og þriggja ára gamall á þessum degi. Haraldur hefur leikið með ógrynni þekktra hljómsveita í gegnum tíðina og meðal þeirra eru hér nefndar Eik, Sálin hans Jóns míns, Póker, Vinir Dóra, Brimkló, PS&CO, Pops og Bítlavinafélagið. Þá hefur Haraldur leikið inn á fjölda platna með sveitum sínum sem og öðru tónlistarfólki

Eggert Þorleifsson leikari og tónlistarmaður er einnig sjötíu og þriggja ára í dag. Þótt Eggert sé fyrst og fremst þekktur sem leikari hefur hann starfað við tónlist einnig, hann hefur t.d. sungið og leikið á ýmis hljóðfæri eins og flautur, klarinettur, píanó, slagverk og orgel með hljómsveitum eins og Þokkabót, Hrekkjusvínum, Nasasjón og fjölda annarra, auk þess auðvitað að koma við sögu á fjölda platna tengdum leikhúsinu.

Guðbergur Auðunsson söngvari er áttatíu og þriggja ára gamall í dag. Hann söng (og lék á gítar) með ýmsum hljómsveitum hér áður fyrr s.s. Fimm í fullu fjöri, Stereo kvintett, City sextett og fleiri sveitum en söng hans má einnig heyra á nokkrum plötum – þekktast laga hans er líklega Lilla Jóns.

Reynir Guðmundsson söngvari er sjötíu og þriggja ára á þessum degi. Reynir söng hér fyrrum með ýmsum hljómsveitum, mest fyrir vestan en hér má nefna sveitir eins oog Ýr, Skippers, Blackbird, Óráð, Náð, BG og Ingibjörg, Saga Klass og Danshljómsveit Vestfjarða svo nokkrar séu nefndar.

Tónlistarmaðurinn Þorri eða Þormóður (Garðar) Símonarson frá Görðum í Staðarsveit á Snæfellsnesi er fjörutíu og sjö ára á þessum degi. Hann gerði hér garðinn frægan áður með sveitum eins og Sveitasveitinni Hundslappadrífu og Stormi í aðsigi en hann hefur einnig sent frá sér sólóplötu.

Fritz Weisshappel

Bassaleikarinn (og í einhverjum tilfellum söngvarinn) Ari Brimar Gústavsson fagnar stórafmæli sínu – sjötugs afmæli í dag. Ari Brimar starfaði með fjöldanum öllum af ballhljómsveitum á sínum yngri árum og hér má nefna sveitir eins og Asterix, Tiktúru, Hafrót, Fjarka, Caos, Dáta (hina síðari) og Crystal.

Helga Þórarinsdóttir lágfiðluleikari á einnig sjötugs afmæli í dag. Helga var lengi vel leiðari lágfiðluleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands, og starfaði með fjölda kammersveita hérlendis og erlendis auk þess að leika á tónleikum víða um heim sem einleikari, hún hefur einnig leikið inn á fjölda platan bæði í klassíska geiranum og léttari tónlist. Eftir slys þurfti hún að leggja lágfiðluleikinn á hilluna en hefur starfað við kennslu og hljómsveitastjórn.

Herdís Egilsdóttir fagnar níutíu og eins árs afmæli á þessum degi. Herdís var kunn á árum áður sem höfundur barnaefnis af ýmsu tagi s.s. bóka og leikrita auk þess sem hún annaðist þáttagerð í sjónvarpi fyrir börn, hún hefur einnig samið tónlist og texta sem komið hafa út á plötum og hér má t.a.m. nefna plötuna Gegnum holt og hæðir, úr samnefndu leikriti eftir hana.

Fritz (von) Weisshappel píanóleikari átti einnig þennan afmælisdag. Hann var Austurríkismaður, fæddur 1908, og kom hingað til lands 1928. Fritz starfaði lengstum sem undirleikari bæði hjá einsöngvurum og kórum, t.a.m. starfaði hann sem undirleikari Karlakórs Reykjavíkur í áratugi og lék inn á fjölda platna hjá kórnum, sem og plötum fjölmargra annarra listamanna. Hann  var einnig virkur í félagsmálum tónlistarmanna, var í stjórn FÍH um tíma og starfaði einnig sem framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Fritz lést 1964.

Guðmundur Guðmundarson (1920-2009) var ekki beinlínis tónlistarmaður en hann samdi fjölda ljóða og texta sem tónlistarmenn færðu í lög sín. Guðmundur samdi m.a. gamanvísur fyrir revíuna Bláu stjörnuna en nokkrar þeirra komu út á plötu með Brynjólfi Jóhannessyni leikara. Einnig samdi hann texta við lög sem barnabarn hans, Katla María söng á plötu 1979 og urðu feikivinsæl. Hann var einnig einn eigenda Hljóðfæraverslunar Sigríðar Helgadóttur um tíma.

Nora (Sue) Kornblueh sellóleikari (f. 1951) hafði þennan afmælisdag einnig, hún var bandarísk en flutti til Íslands 1980 með eiginmanni sínum, Óskari Ingólfssyni klarinettuleikara. Hér starfaði hún við sellókennslu og lék einnig víða, t.d. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kaldalónstríóinu á tónleikum, og á plötur. Nora lést 2008 aðeins 57 ára gömul.

Vissir þú að Mannakorn hefur gefið út jólaplötu?