
Quadropedic
Djasskvartettinn Qudrapedic var í raun Kvartett Kára Árnasonar sem hafði starfað með hléum um árabil en frá árinu 2004 líklega með sama mannskap, þeim Sigurði Flosasyni saxófónleikara, Ómari Guðjónssyni gítarleikara, Agnari Má Magnússyni Hammond-orgelleikara og hljómsveitarstjóranum og trommuleikaranum Kára Ibsen Árnasyni.
Kvartettinn tók upp Quadropedic nafnið árið 2007 í tilefni útgáfu plötu sem gefin var út til styrktar sjóði fyrir föður Kára, Árna Ibsen leikritaskáldi og rithöfundi sem hafði þá átt í alvarlegum veikindum um tveggja ára skeið en ágóðinn af sölu plötunnar rann í þann sjóð auk innkomu af útgáfutónleikum sem haldnir voru í Þjóðleikhúsinu (Kassanum).
Platan sem var átta laga, hlaut nafnið Úr skel og var gefin út af Dimmu en á henni skiptu þeir félagar bróðurlega með sér lagasmíðunum, platan hlaut prýðilega dóma í Morgunblaðinu. Quadropedic starfaði einungis í kringum útgáfu plötunnar undir þessu nafni en starfaði svo áfram næstu árin í nafni Kvartetts Kára Árnasonar, lengstum með sama mannskap.














































