Fyrstur á fætur
(Lag / texti: Spilverk þjóðanna)
Ég er fyrstur á fætur þá turnklukkan slær
og vappa til fólksins með daginn í gær.
Ég ræði‘ oft við mánann um bæjarins frúr.
Hann guðar á gluggann og klæðir þær úr.
Maddama frú með franskan svip,
fjaðrahatt og varalit.
Sálin sokkin í
sukk og svínarí.
Og svo eru þær sem hugsa hátt
um betri heim, sinn eigin mátt.
En hver vill ala börn
hins snauða verkamanns?
[af plötunni Spilverk þjóðanna – Götuskór]














































