Hjartað hamast

Hjartað hamast
(Lag og texti: Sigur rós)

Hjartað hamast eins og alltaf
en nú úr takt við tímann
týndur og gleymdur heima hjá mér
alveg að springa gegnum nefið
sný upp á sveitta sængina
stari á ryðið sem vex á mér
étur sig inn í  skelina
stend upp, mig svimar
það molnar af mér
ég fer um á fötum
geng fram hjá mér
klæði mig nakinn
og fer svo úr
vakinn en sofinn
sef ekki dúr
hjartað stoppar
hreyfist ekki
kem gangráð fyrir
sem ég kyngi og fel
sé allt tvöfalt, tvöfalt svart
finn startkapal og kveiki í mér
kerfisbilun
heilinn neitar
held? áfram að leita
óstjórnandi upplýsingar mata mig
þarf aftur að mata
tala upphátt og ferðast inni í mér leita
ég leita af lífi
um stund ég stóð í stað
með von að vin ég vinn upp smá tíma
leita að ágætis byrjun
en verð að vonbrigðum.

[af plötunni Sigur rós – Ágætis byrjun]