Landsímalína

Landsímalína
(Lag / texti: Sigurður Bjóla og Valgeir Guðjónsson)

Það voru hjón á Vestfjörðum
sem hétu Þorvaldur og Lína,
áttu fyrir skuldunum
og allt var í þessu fína.

Valdi hann var skafari,
Lína vann í pökkuninni,
svo fengu bæði nóg af því,
vildu‘ í burtu af mölinni.

Ekki samt í sveitina,
nei þau vildu beint á bikið
og nú er Lína‘ í Hraunbænum
og fílar sig sko ekki mikið.

viðlag
Landsímalína með símreikningana sína,
Landsímalína hringir vestur oft á dag.

Hún saknar fjallanna og kallanna
við hjallana sem voru alltaf að skjalla‘ hana,
fuglanna og bátanna,
vinkvennanna og allra tíu dropanna.
Mannfjöldinn og menningin,
bíóin og bingóin,
hagkaupin og félagsmálastofnunin
megna ekki‘ að kærað hana.

viðlag

Húsmóðir í Hraunbænum
sól í heiði, liðin góa,
stendur hljóð á svölunum
og skimar út á Faxaflóa.

Svo grípur hún um símtólið,
númerið byrjar á níu,
hringir í kaupfélagið
og biður um Ólafíu.

viðlag

[af plötuni Spilverk þjóðanna – Bráðabirgðabúgí]