Eitt sinn

Eitt sinn (Lag / texti: Sálin hans Jóns míns / Guðmundur Jónsson) Komdu sæll og blessaður, ertu mættur enn og aftur vinur. Líttu inn því hér er hlýtt, við önnumst um þig hvað sem á þér dynur. Viltu gleyma stað og stund, til þess hef ég efnin sterk og veik. Viltu losta eða ást, undirgefin…

Eitt og eitt

Eitt og eitt (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Eitt það leiðir annað af sér. Þó við óskum og vonum fer sem fer. En við öllum spurnum er eitthvert svar. Heitur eldur endar sem kulnað skar. Tjaldið fellur, tíminn er frár. við þó taka af árum önnur ár. Og við brýnum að nýju…

Einu sinni á ágústkvöldi

Einu sinni á ágústkvöldi (Lag / texti: Jón Múli Árnason / Jónas Árnason) Einu sinni á ágústkvöldi, austur í Þingvallasveit, gerðist í dulitlu dragi, dulítið sem enginn veit nema við og nokkrir þrestir og kjarrið græna inni í Bolabás og Ármannsfellið fagurblátt og fannir Skjaldbreiðar og hraunið fyrir sunnan Eyktarás. Þó að æviárin hverfi út…

Einsi kaldi úr Eyjunum

Einsi kaldi úr Eyjunum (Lag / texti: Jón Sigurðsson) Ég heiti Einsi kaldi úr Eyjunum, ég er inn undir hjá meyjunum og hvar sem ég heiminn fer þær horfa á eftir mér. Ég hef siglt um höfin hrein og blá og hitt þær bestu Spáni á. Þær slógust þar um mig, einar þrjár með alveg…

Eins konar ást

Eins konar ást (Lag / texti: Magnús Kjartansson / Magnús Eiríksson) Þig vil ég fá til að vera mér hjá, vertu nú vænn og segðu já því betra er að sjást en kveljast og þjást af eins konar ást. Þú veist að við tvö eigum svo margt sameiginlegt því finnst mér það hart að heyra…

Enskur hermaður

Enskur hermaður (Lag & texti: Ásgeir Ingvarsson) Ég fæddist upp í England hjá afi minn og frænka, þar var utan fyrir Manchester í sveitin og það var rétt hjá þorpini, það þetta kirkju og sjoppinni og þangað var hann afi að selja hveitið. Og það var eins og afi bara ætti heima á sjoppan, hann…

Englar

Englar (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Andartak í myrkri og þögn, augnablik, ein agnarögn. Nokkur orð að lokum og dulítið bros. Sjá, það kviknaði ljós. Fyrst um sinn stólar og borð, síðar meir tvö atviksorð. Eftir það, öll árin í aldanna skaut, já, og börnin á brott. viðlag Þú og ég, við…

Englakór frá himnahöll

Englakór frá himnahöll (Lag / texti: Chadwick / Jakob Jónsson) Englakór frá himnahöll hljómar yfir víða jörð, enduróma fold og fjöll, flytja glaða þakkargjörð. Gloria in excelsis Deo. Hirðar hví er hátíð nú, hví er loftið fullt af söng? Hver er fregnin helga sú er heyrir vetrarnóttin löng? Gloria in excelsis Deo. Kom – Í…

Eltu mig uppi

Eltu mig uppi (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Næturkulið krafsar í mig, keyrir allt í kaf. Langur skuggi engu líkur læðist út á haf. Hvergi banginn keyri ég og kætist yfir því sem ég á í vændum síðar, sem ég stefni í. viðlag Mikið var ég feginn því að lifa þessa nótt.…

Eldör

Eldör (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Eldör af bambusboga breytti um stefnu og kveikti í. Tendraði ástarloga, aldrei ég fæst til að trúa því. Því þessi ör var ekki ætluð þér, þú getur flokkað það sem mistök. viðlag Til eru milljón sinnum betri menn en ég. Tugir á tugi ofan arka lífsins…

Eldgamla ísafold

Eldgamla Ísafold (Lag / texti: J.B. Lully / Bjarni Thorarensen) Eldgamla ísafold, ástkæra fósturmold, fjallkonan fríð. Mögum þín muntu kær, meðan lönd gyrðir sær og gumar girnast mær, gljár sól á hlíð. Eldgamla ísafold, ástkæra fósturmold, fjallkonan fríð. Ágætust auðnan þér upp lyfti, biðjum vér meðan að uppi er öll heimsins tíð. [m.a. á plötunni…

Ekki vill það batna

Ekki vill það batna (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Jónas Friðrik Guðnason) Ekki vill það batna ástandið, ennþá sama gamla vesenið, ekki eru þeir blankir Óli Gríms og hinir Sástu hvernig fór með fiskeldið og fannst þér ekki skítt með loðdýrið og finnst þér ekki allir orðnir ósköp linir? Fólk er yfirleitt orðið skelfing…

Ekki trúa á það versta

Ekki trúa á það versta (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Það er víst enginn eins. Það ekki er til neins að ætla að breyta því; þú þarft ekki að reyna. Þó oft það ergi þig sem ekki angrar mig, um aðeins eitt ég bið: Þú takir til greina að ekki er allt…

Ekki nema von

Ekki nema von (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) Það er hugarstríð, ást og hatur alla tíð hér í heimi, ár og síð. Þegar myrkrið fer eins og alda yfir sker, þegar eitthvað út af ber. Kannski er það von sem fleytir ykkur yfir úfið haf. Ekki nema von, því hver veit nema…

Ekki bíl

Ekki bíl (Lag / texti: Valgeir Guðjónsson / Pétur Gunnarsson) Elsku pabbi, ekki kaupa bíl, þú veist mig langar miklu meira í fíl. Eða segðu til að mynda hjól, við gætum húrrað hiklaust heims um ból. Þú veist þú bara stressast ef ekur þú í bíl, þitt hjarta fer í krans á rauðu ljósi. Er…

Eilífðarvélin

Eilífðarvélin (Lag / texti: Jens Hansson / Friðrik Sturluson) Ertu til í að lifa ókomin ár þó það kosti blóð og tár? Tæpasta vað – teflum á það. Tilgangurinn hann helgar meðalið. Ef ég hef reiknað rétt, reyndin verður þér í vil. Vélin er samansett, seinna verður meira til. Eins og vatn inn í steininn…

Ef þú giftist mér

Ef þú giftist mér (Lag / texti: írskt þjóðlag / Jónas Árnason) Ég skal gefa þér blómin blá og boltann minn skaltu líka fá, ef þú giftist, ef þú bara giftist, ef þú giftist mér. Ég skal kaupa þér kökusnúð með kardimommum og sykurhúð, ef þú giftist, ef þú bara giftist, ef þú giftist mér.…

Ef þú ert mér hjá

Ef þú ert mér hjá (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Vetur kemur og vetur fer en alltaf vorar í sálinni á mér ef aðeins þú ert mér, þú ert mér hjá, þú ert mér hjá. Alltaf ertu svo blíð og góð, kjútípæjan mín trítilóð, ef aðeins þú ert mér, þú ert mér hjá, þú ert…

Ef væri ég söngvari

Ef væri ég söngvari (Lag / texti: erlent lag / Páll J. Árdal) Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð um sólina, vorið og land mitt og þjóð, um sólina, vorið og land mitt og þjóð. En mömmu ég gæfi mín ljúfustu ljóð, hún leiðir mig, verndar og er mér svo góð. Hún leiðir mig,…

Ef við lítum yfir farinn veg

Ef við lítum yfir farinn veg (Lag / texti: óþekktur höfundur / Haraldur Ólafsson) Er við lítum yfir farinn veg og finnum gamla slóð færast löngu liðnar stundir okkur nær. Því að margar standa vörður þær, sem einhver okkar hlóð uppi um fjöll, þar sem vorvindurinn hlær. Öll þau yndisfögru kvöld, okkar litlu skátatjöld, eru…

Ef ég nenni

Ef ég nenni (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) Gimsteina og perlur, gullsveig um enni sendi ég henni ástinni minni. Öll heimsins undur ef ég þá nenni, færi ég henni, ástinni minni. Lífsvatnið dýra úr lindinni góðu færi ég henni ef ég nenni. Hesturinn gullsól hóflega fetar heimsenda‘ að rata ef ég…

Einn fíll lagði af stað í leiðangur

Einn fíll lagði af stað í leiðangur (Lag / texti: höfundur ókunnur) Einn fíll lagði af stað í leiðangur, lipur var ekki hans fótgangur. Takturinn fannst honum heldur tómlegur svo hann tók sér einn til viðbótar. Tveir fílar lögðu af stað í leiðangur, lipur var ei þeirra fótgangur. Takturinn fannst þeim heldur tómlegur svo þeir…

Einhvers staðar einhvern tímann aftur

Einhvers staðar einhvern tímann aftur (Lag / texti: Magnús Eiríksson)   Einhvers staðar einhvern tímann aftur. liggur leiðin um veginn til mín og þú segir; Ég saknaði þín. Ég saknaðu þín. Kyrrlátt kvöldið hvíslar ástarorðum út í buskann, hver heyrir þau nú? Út úr lífi mínu labbaðir þú. Labbaðir þú. En ég nenni ekki að…

Einbúinn

Einbúinn (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Ég bý í sveit, á sauðfé á beit og sællegar kýr úti á túni. Sumarsól heit sem vermir nú reit en samt má ég bíða eftir frúnni. Traktorinn minn, reiðhesturinn, hundur og dálítið af hænum. Kraftaverk eitt til oss gæti leitt hýrlega mey burt úr bænum. Veturinn er erfiður…

Eina ósk

Eina ósk (Lag / texti: Jóhann G. Jóhannsson) Ef ég ætti eina ósk, veistu hvers ég myndi óska mér? Reyndu að giska á hvers eðlis þessi ósk mín er. Ef þú þekktir mig, þú mundir geta svarað því, þú mundir á mér sjá hvað það er sem mig langar í. viðlag Eina ósk, ég væri…

Eina nótt

Eina nótt (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Jónas Friðrik Guðnason) Láttu mjúka lokka flóð, léttan strjúka mér um kinn meðan skuggar mjakast nær, meðan nóttin læðist inn. Hvíldi hljóð við mína lið, hér mun birta alltof fljótt. Ekki mikið um ég bið, aðeins þessa stuttu nótt. Skiptir engu rangt og rétt, rök og siði…

Ein stutt, ein löng

Ein stutt, ein löng (Lag / texti: ókunnur) Ein stutt, ein löng, hringur á stöng og flokkur sem spilað’ og söng. Penni og blað og fata sem lak Fata sem lak og penni og blað. Ein stutt ein löng, hringur á stöng og flokkur sem spilað’ og söng. Ein stutt, ein löng, hringur á stöng…

Ein ég sit og sauma

Ein ég sit og sauma (Lag / texti: erlent lag / höfundur ókunnur) Ein ég sit og sauma inni í litlu húsi, enginn kemur að sjá mig nema litla músin. Hoppaðu upp og lokaðu augunum, bentu í austur, bentu í vestur, bentu á þann sem að þér þykur bestur. [m.a. á plötunni Edda Borg –…

Dauði Pegasusar

Dauði Pegasusar (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Jónas Friðgeir Elíasson) Allar klær ég úti hef, ekkert dugir lengur. Ég ætlaði að yrkja stef en illa mér það gengur. Hugurinn og höndin er hálft á tveimur áttum. Það er satt um megn er mér að miðla með þeim sáttum. Hendur mínar halda á heljar…

Drottningin vonda

Drottningin vonda (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Drottningin vonda á líf mitt, hjarta og huga, í heljargreipum hennar dagurinn frýs, hún kemur á nóttinni og nístir mig kaldan, nálægð hennar breytir öllu í ís. Í klakahöllinni þylur þulurnar sínar, kaldur þeyr af orðum kælir mitt blóð, vakinn og sofinn hugsa…

Dönsum, dönsum kringum tréð

Dönsum, dönsum kringum tréð (Lag / texti: erlent lag / Þorgeir Ástvaldsson) Íbúðin er öll á rúi og stúi, rétt eins og jólasveinar hér búi. Svo er þó ekki, því það er svo fjölmargt sem á jólunum þykir svo þarft. Pabbi, hann borar, skrúfar og sagar, krakkanna borð og stóla hann lagar. Þau alltaf hjálpa…

Dökkhærð og dimm

Dökkhærð og dimm (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Kristján Hreinsson) Ég geng um þennan veg, dagurinn líður. Áfram ferðast ég, náttmyrkrið bíður. Þú ert ein og augun þín stara á mig. Þú ert ein, ég þrái að festast við þig. Nóttin er dökkhærð og dimm, dásamleg, fögur og grimm… Lífið er sá dans…

Dýrið gengur laust

Dýrið gengur laust (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Jónas Friðrik Guðnason) Já, nú mega vífin sko vara sig því vinurinn hann er að búa sig af stað, af stað, já af stað. Hann pressaði bestu buxurnar og burstaði fölsku tennurnar og allt það, allt það, já allt það. viðlag Og svo, og svo, og…

Dýravísur

Dýravísur (Lag / texti: höfundur ókunnur) Nú skal syngja um kýrnar sem baula hátt í kór, þær gefa okkur mjólkina svo öll við verðum stór. Mjólk, mjólk, mjólk, mjólk, mjólk Mö mö mö… Nú skal syngja um hænsnin sem gagga endalaust, þær gefa okkur eggin svo öll við verðum hraust. Hraust, hraust, hraust, hraust, hraust…

Dvel ég í draumahöll

Dvel ég í draumahöll (Lag / texti: Christian Hartmann og Thorbjörn Egner / Kristján frá Djúpalæk) Dvel ég í draumahöll og dagana lofa. Litlar mýs um löndin öll, liggja nú og sofa. Sígur ró á djúp og dal, dýr til hvílu ganga. Einnig sofna Skolli skal með skottið undir vanga. [m.a. á plötunni Dýrin í…

Dimma

Dimma (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Friðrik Sturluson) viðlag Dragðu yfir dimma nótt og dökka feldinn þinn. Dragðu yfir dimma nótt, við dveljum enn um sinn. Það kemur allt í ljós, það kemur liðlangan dag. Það kemur undir rós annað sólarlag. Þegar dagur dvín eru örlögin mín ofin inn í þín. viðlag Hún hverfur…

Danska lagið

Danska lagið (Lag / texti Eyjólfur Kristjánsson) Manstu fyrir langa löngu, við sátum saman í skólastofu. Ég dáði þig en þú tókst ekki eftir mér, ekki frekar en ég væri krækiber. Þú varst alltaf best í dönsku, það fyllti hinar stelpurnar vonsku þegar kennarinn kallaði á þín til sín og lét þig syngja á dönsku…

Dansi dansi dúkkan mín

Dansi dansi dúkkan mín (Lag / texti: erlent lag / Gunnar Egilson [eldri]) Dansi dansi dúkkan mín, dæmalaust er stúlkan fín, voða fallegt hrokkið hár, hettan rauð og kjóllinn blár. Svo er hún með silkiskó, sokka hvíta eins og snjó. Heldurðu ekki að hún sé fín? Dansi dansi dúkkan mín. Dansi dansi dúkkan mín, dæmalaust…

Dans um ágústnótt

Dans um ágústnótt (Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Jónas Friðrik Guðnason) Um sumarkvöld þau sáust fyrst og sumarkvöldið það var sveipað höfgum blómailm og mildum töfrablæ sem fyllti hjartað draumum eins og á sér stundum stað. Og stráði gullnu bliki yfir lönd og yfir sæ. Og stráði gullnu bliki yfir lönd og yfir sæ.…

Dans gleðinnar

Dans gleðinnar Lag / texti: Pálmi Gunnarsson / Kristján frá Djúpalæk) Það er svo margt að una við að elska þrá og gleðiast við, jafnt orð sem þögn og lit sem lag, jafnt langa nótt sem bjartan dag., Mér fátt er kærra öðru eitt, ég elska lífið djúpt og heitt. Því allt sem maður óskar…

Dalakofinn

Dalakofinn (Lag / texti: Arch Joyce / Davíð Stefánsson) Vertu hjá mér Dísa, meðan kvöldsins klukkur hringja og kaldir stormar næða um skóg og eyðisand. Þá skal ég okkur bæði yfir djúpið dökka syngja heim í dalinn, þar sem ég ætla að byggja og nema land. Kysstu mig, kysstu mig. Þú þekkir dalinn, Dísa, þar…

Dagurinn líður

Dagurinn líður (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Hreimur Örn Heimisson, Arnþór Örlygsson og Gunnar Þór Eggertsson) Dagurinn líður og fjarar út frá mér. Af hverju ertu ekki hér? Af hverju ertu ekki hér? Dagurinn líður enda gerist ekki neitt. Einn ég sit og hugsa málið, mér þykir þetta leitt. viðlag Því það varst…

Dagny

Dagny (Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson) Er sumarið kom yfir sæinn og sólskinið ljómaði um bæinn og vafði sér heiminn að hjarta, ég hitti þig, ástin mín bjarta. Og saman við leiddumst og sungum með sumar í hjörtunum ungum, hið ljúfasta úr lögunum mínum, ég las það úr augunum þínum. Og húmi…

Dagar og nætur

Dagar og nætur (Lag / texti: Jóhann G. Jóhannsson) viðlag Dagar, nætur, vikur, mánuðir, ár, hamingjustundir, gleði, sorg og tár. Áfram, áfram fetar lífið sinn veg, er ekki tilveran hreint stórkostleg? Stundum er bjart í lífi hvers manns en fyrr en varir vitja sorgir hans. Við sjáum oft svo sterk dæmi um það að augnablikið…

Dúkkan hennar Dóru

Dúkkan hennar Dóru (Lag / texti: höfundur ókunnur / María B. Johnson) Dúkkan hennar Dóru var með sótt sótt sótt, hún hringdi og sagði lækni‘ að koma fljótt fljótt fljótt. Læknirinn kom með sína tösku og sinn hatt, hann bankaði á dyrnar, rattatattatatt. Hann skoðaði dúkkuna og hristi sinn haus, hún strax skal í rúmið…

Draumurinn lifir

Draumurinn lifir (Lag / texti: Hreimur Örn Heimisson / Kristján Hreinsson) Glaðleg kona fagnar sigri stutta stund. Dauðinn heimtar annan fund. Svartur skuggi læsir krumlu í þitt hold, hjartað geymt í kaldri mold. Þú lifðir hér og áttir von sem hafði vængi. Og vonin er í dag eitt lítið, fallegt barn. viðlag Draumurinn lifir, draumurinn…

Draumaprinsinn

Draumaprinsinn (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Í mannfjöldanum geng ég ein og þekki ekki neinn, þúsundir bíla þjóta hjá þegar tilveran er grá. Á ball um þessa helgi margur vongóður fer með Bakkusi út að skemmta sér, kannski skelli ég mér. Kannski sé ég draumaprinsinn Benóný á ballinu, hann leggur sterkan arm um minn barm…

Draumadrottningin

Draumadrottningin (Lag / texti: Kristján Viðar Haraldsson) Það var fallegt kvöld og klukkan orðin miklu meira en átta, af mér tekin öll völd og mér skipað inn í rúm til þess að hátta. Mér fannst svo hundleiðinlegt heima, fleygði mér útaf og lét mig dreyma. Allt í einu mér brá, ég heyrði að það var…

Donna donna

Donna Donna (Lag / texti: Donovan / Valur Óskarsson) Ungur kálfur einn í kerru er á leiðinni á markaðinn. Hátt í lofti sér hann svölu svífa frjálsa um himininn. viðlag Napur vindur hlær og hlær og hamast villt og ótt, hlær og hlær í heilan dag og hálfa sumarnótt. Donna Donna… Hætt’ að kvarta, hvæsir…

Dísukvæði

Dísukvæði (Lag / texti: Christiani / Friðrik A. Friðriksson) Vakna Dísa, vakna nú, veltu þér úr fleti. Vakna segi ég, vakna þú, vond er þessi leti. Björt í suðri sólin skin, sveifla piltar ljáum. Hátt og ótt í eggjum hvín, er þeir granda stráum. Tjú tjú tjú… Dísa, þetta draumaslór, dámar mér nú ekki, ljáin…