
Gunnar Bjarni Ragnarsson
Eitt afmælisbarn er í gagnagrunni Glatkistunnar að þessu sinni:
Gunnar Bjarni Ragnarsson tónlistarmaður er fjörutíu og sex ára. Margir muna eftir honum sem gítarleikara og lagahöfundi í hljómsveitinni Jet Black Joe sem fór mikinn upp úr 1990 en hann hefur einnig starfrækt fjöldann allan af hljómsveitum frá unga aldri, þar má nefna sveitir eins og Jetz, Allaballa, Bleeding volcano, Boneyard, Mary Poppins, Nirvana, Bootlegs, Deep Black Zeppelin og FROG.














































