
Hörður Áskelsson
Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni:
Hörður Áskelsson kórstjórnandi og organisti er sextíu og sex ára gamall í dag. Hörður er stofnandi og stjórnandi Mótettukórs Hallgrímskirkju og Schola Cantorum sem hafa gefið út fjölda platna, hann er ennfremur organisti Hallgrímskirkju og hefur leikið á og gefið út plötur einn og í samstarfi við aðra, auk þess að hafa leikið á plötum annarra listamanna. Þá hefur hann hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín í tónlistinni, s.s. fálkaorðuna, verið borgarlistamaður og margt fleira.
Guðrún Ágústsdóttir (f. 1897) hefði einnig átt afmæli á þessum degi en þessi sópransöngkona var með fyrstu óperusöngkonum okkar Íslendinga, hún tók þátt í fyrstu óratoríunni sem sett var á svið á Íslandi og söng í tilraunaútsendingum útvarps fyrir 1930. Hún lést árið 1983.