
Laddi
Tvö afmælisbörn koma í dag við sögu á skrá Glatkistunnar yfir tónlistarfólk:
Ársæll Másson gítarleikari og menntaskólakennari er sextíu og fimm ára gamall í dag en hann hefur leikið með ýmsum sveitum í gegnum tíðina. Þeirra á meðal má nefna Stórsveit Reykjavíkur, Bambinos, Misgengið og Föruneyti Gísla Helgasonar. Ársæll gegndi starfi djasstónlistargagnrýnanda á DV um tíma.
Þórhallur Sigurðsson (Laddi) tónlistarmaður og skemmtikraftur er sjötíu og þriggja ára gamall í dag. Laddi er þekktastur fyrir grínið og hefur m.a. gefið út fjölmargar plötur einn og í félagi við aðra, en hefur einnig sungið alvarlegri tónlist. Hann var trymbill í hljómsveitum hér áður fyrr og spilaði hér heima sem erlendis með þeim. Fyrir fáeinum árum kom út bók um Ladda, Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja, skráð af Gísla Rúnari Jónssyni en áður hafði önnur bók komið út um hann.