Nú er lag
(Lag og texti: Þorsteinn Einarsson)
Út við sjónarrönd leynist gullin strönd
og þar kýs ég oft að dvelja.
Þar er kyrrð og ró út við lygnan sjó
og þar á ég lítinn kofa.
Sumardægrin löng ég hlýði á fagran söng
sem þar berst mér oft til eyrna.
Allir una við hreina loftslagið,
engin þörf á því að menga.
Fólk hér kann sér ekki hóf ekkert græðgiskóf,
hér er kappnóg fyrir alla.
Ef þú sérð inn á við inn á annað svið
munt þú heyra sönginn fagra.
Nú er lag, nú er lag.
Kveikjum nýja elda, kveikjum þá í dag.
[af plötunni Hjálmar – Ferðsót]