
Bergþór Smári
Blúsarinn Bergþór Smári & Bex band verða með sumarblústónleika á Dillon við Laugaveg fimmtudagskvöldið 1. júlí kl. 21:00 og verður sérstakur gestur þeirra gítarleikarinn Nick Jameson.
Ásamt Begga Smára sem leikur á gítar og syngur, skipa Bex bandið þeir Ásmundur Jóhannsson trommuleikari og Brynjar Páll Björnsson bassaleikari.
Aðgangur er ókeypis.














































