Afmælisbörn 11. apríl 2023

Jón Guðfinnsson

Á þessum degi eru tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar hvorki fleiri né færri en sex talsins:

Pétur Hjaltested hljómborðsleikara skal fyrstan nefna en hann er sextíu og sjö ára gamall í dag, fáir hafa líklega leikið með jafn mörgum hljómsveitum og Pétur en hér eru aðeins nefndar Paradís, Póker, Friðryk, Xport, Birta, Borgís, Brimkló, Cogito, Egó, Faraldur, Eik og Haukar, og plöturnar sem hann hefur leikið inn á skipta hundruðum.

Akureyringurinn Kristján Pétur Sigurðsson er sjötíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita í gegnum árin og þekktust þeirra eru líkast til Kamarorghestar en hann var einnig í hljómsveitum eins og Skapti, Akureyrar-útlagarnir, Bísa blúsbandið, Parror, Hún andar, Lost og Húsband Populus Tremula, auk margra annarra sveita.

Ragnar „Sót“ Gunnarsson Skriðjökull númer eitt á stórafmæli en hann er sextugur. Raggi var söngvari Skriðjöklanna frá Akureyri og söng þ.a.l. lög eins og Tengja og Hesturinn auk fleiri vinsælla laga, en hann hefur einnig sungið með hljómsveitum eins og Straumum, Alveg svörtum og Bölvar & ragnar.

Jón Guðfinnsson bassaleikari hljómsveitarinnar Lands og sona er fimmtíu og eins árs gamall á þessum degi. Jón, sem kemur upphaflega frá Hvolsvelli lék á árum áður með sveitum eins og Durex, Munkum í meirihluta, Sex appeal, Eins og hinum og Frk. Júlíu en spilar nú með Made in sveitin.

Hinn eini sanni Villi Vill (Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson f. 1945) hefði átt afmæli á þessum degi en hann lést 1978 í bílslysi í Luxemborg þar sem hann starfaði sem flugmaður. Fjölmargar plötur komu út með honum, auk platna sem hann söng ásamt Ellyju systur sinni. Allir þekkja lög eins og Einbúinn, Bíddu pabbi, Hrafninn, Vor í Vaglaskógi, Lítill drengur, Söknuður og Litla sæta ljúfan góða.

Söngkonan Hallbjörg Bjarnadóttir (1917-97)  átti einnig þennan afmælisdag en hún er hvað þekktust fyrir lög sín Björt mey og hrein og Vorvísa (Vorið er komið). Hún lærði söng í Reykjavík og Kaupmannahöfn og átti viðburðarríka ævi hér heima á Íslandi og erlendis, sem gerð var góð skil í æviminningum hennar, Hallbjörg …eftir sínu hjartans lagi, skráðum af Stefáni Jökulssyni.

Vissir þú að 200.000 naglbítar lentu í þriðja sæti Músíktilrauna vorið 1995?