
Rúnar Erlingsson
Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:
Rúnar Erlingsson bassaleikari frá Raufarhöfn er sextíu og fimm ára gamall á þessum degi. Rúnars verður alltaf minnst sem eins af Utangarðsmönnum sem slógu í gegn sumarið 1980 en hann lék einnig með tengdum sveitum í kjölfarið, s.s. Bodies, Mögulegt óverdós, Puppets, Jasmini og Egó. Rúnar hefur alið manninn í Danmörku mörg undanfarin ár.
Vissir þú að Sigtryggur Guðlaugsson sem stofnaði Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði gaf út sönglagahefti með sjötíu frumsömdum sálmalögum?