
Stefán Ágúst Kristjánsson
Tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar eru fjögur í dag:
Ámundi Ámundason (Ámi) einn þekktasti umboðsmaður og plötuútgefandi áttunda áratugarins er sjötíu og átta ára gamall í dag. Ámundi annaðist umboðsmennsku fyrir hljómsveitir eins og Hljóma, auk þess að gefa út plötur undir merkjum ÁÁ-records. Hann markar þannig upphaf útgáfusögu Stuðmanna og Jóhanns G. Jóhannssonar en alls komu út um fjörutíu titlar undir útgáfumerki Ámunda.
Njáll (Bergþór) Sigurjónsson hljómborðs- og bassaleikari er sjötíu og níu ára gamall í dag. Njáll sem hefur síðustu áratugina mestmegnis alið manninn í Færeyjum, lék hér á árum áður með sveitum eins og Flamingo kvartettnum, Lion-tríóinu, Naustinu, Bergmönnum og Dixielandhljómsveit Árna Ísleifssonar en hann hefur einnig leikið inn á nokkrar plötur.
Alli Rúts (Albert Sigurður Rútsson) á einnig afmæli en hann er sjötíu og sjö ára. Alli var lengi þekktur skemmtikraftur, var iðulega fenginn til að vera kynnir á hvers kyns skemmtunum enda oft kynntur sem „hinn bráðsnjalli“ Alli Rúts, en hann var einnig þekktur í gerfi jólasveins. Þannig uppáklæddur gaf hann einmitt út fjögurra laga plötuna Kátir voru krakkar, sem inniheldur m.a. Ég er jólasveinn, sem enn heyrist reglulega í útvarpi fyrir jól.
Og að síðustu er hér nefndur tónskáldið og tónlistarfrömuðurinn Stefán Ágúst Kristjánsson (1897-1988) en hann hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Stefán kom að ýmsum tónlistarmálum á Akureyri, t.a.m. var hann einn af stofnendum Karlakórsins Geysis, einn af stofnendum Tónlistarfélags Akureyrar og Heklu (sambands norðlenskra karlakóra) svo fátt eitt sé nefnt. Þá söng hann í kórum og samdi sjálfur sönglög sem m.a. voru gefin út á plötu að honum látnum.
Vissir þú að Elly Vilhjálms söng eigin texta á plötu danssveitarinnar Pís of keik en sonur hennar, Máni Svavarsson var forsprakki þeirrar sveitar?