Afmælisbörn 24. september 2023

Garðar Cortes

Afmælisbörnin eru átta í dag:

Garðar (Emanúel) Cortes tenórsöngvari hefði átt afmæli á þessum degi en hann lést fyrr á þessu ári. Garðar stundaði söngnám hér heima á Íslandi og í Englandi og að loknu námi sinnti hann ýmsum söngverkefnum hér heima, bæði á sviði og plötum, og gaf út nokkrar plötur sjálfur. Garðar stýrði fjölmörgum kórum, stofnaði og stýrði stofnunum eins og Söngskólanum í Reykjavík, Íslensku óperunni og Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur.

Danny Pollock er sextíu og fimm ára gamall í dag. Hann kom fram á sjónarsviðið með miklum hvelli í íslenskt tónlistarlíf þegar Utangarðsmenn birtust árið 1980 en lék þá einnig með sveitum eins og Bodies, Most, Baðvörðunum, Móral, Q4U, Mögulegt óverdós, Jamisus og Oxzmá. Síðar hefur Danny hefur ennfremur í sveitum eins og South-cost killing company, Bulldozers og Brúðarbandinu og unnið með tónlistarmönnum eins og Bubba Morthens og Mike bróður sínum.

Eyjólfur Jóhannsson gítarleikari SSSól (Síðan skein sól) fagnar fimmtíu og níu ára afmæli á þessum degi. Eyjólfur hefur auðvitað starfað með Sólinni í áratugi og leikið inn á fjölda platna með þeirri sveit en hann hafði áður skapað sér nafn með nýbylgju- og pönkskotnum hljómsveitum eins og Tappa tíkarrassi, Dá og De Vunderfoolz.

Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónsöngvari er fimmtíu og fimm ára gamall í dag. Ólafur er af miklum tónlistarættum og hóf snemma að syngja m.a. í leikhúsi en hefur haslað sér völl á óperusviðinu og starfar í dag sem slíkur í Þýskalandi. Hann nam söng hér heima hjá Guðmundi Jónssyni og fór svo í framhaldsnáms til Skotlands og hefur starfað víða um lönd, hann var fyrstur söngvara til að verða fastráðinn við Íslensku óperuna á sínum tíma.

Ketill Jensson

Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari er fimmtíu og átta ára í dag. Auður nam hér heima og svo í Bandaríkjunum en hún hefur komið fram á tónleikum um allan heim bæði sem einleikari og sem hluti af stærri hópum. Hún hefur starfað með tónlistarhópum eins og Eþos strengjakvartettnum Trio Nordica, Caput, Sinfóníuhljómsveit Íslands og ótal mörgum öðrum og hefur jafnframt leikið inn á ógrynni hljómplatna í gegnum tíðina.

Ketill Jensson tenórsöngvari hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Ketill fæddist í Reykjavík 1925 og stundaði sjómennsku áður en hann hóf söngnám hér heima og á Ítalíu. Söngferill hans varð þó styttri en menn ætluðu en nokkrar plötur komu út með söng hans, þar af ein breiðskífa er hann var liðlega sjötugur. Ketill lést 1994.

Guðmunda Nielsen tónskáld og tónlistarfrömuður á Eyrarbakka átti einnig þennan afmælisdag. Guðmunda fæddist 1885, stýrði kórum, annaðist undirleik og kenndi tónlist í heimabæ sínum Eyrarbakka og sinnti þannig ákveðnu frumkvöðlastarfi í tónlistinni þar í bæ en hún var dóttir kaupmannshjónanna í þorpinu. Guðmunda samdi tónlist sjálf og telst vera með fyrstu ef ekki fyrsta íslenska kventónskáldið. Hún lést 1936.

Þá átti Magnús Randrup harmonikkuleikari einnig afmæli á þessum degi en hann lést árið 2006. Magnús (fæddur 1926) var sjálfmenntaður í tónlistinni og kom víða við í henni, hann starfrækti og lék með fjölda sveita sem aðallega voru í gömlu dönsunum, þá lék hann jafnframt inn á nokkrar plötur. Hann var einnig einn stofnenda Lúðrasveitar Hafnarfjarðar en hann lék bæði á saxófón og trompet.

Vissir þú að Gunnar Salvarsson gaf eitt sinn út tímaritið Poppblaðið?