Afmælisbörn 22. febrúar 2024

Júlíus Agnarsson

Fjölmörg afmælisbörn eru skráð á þessum degi hjá Glatkistunni:

Davíð Þór Hlinason gítarleikari er fimmtíu og fjögurra ára í dag en hann hefur birst í hinum ýmsu hljómsveitum allt frá því að hann var í Sérsveitinni árið 1989. Aðrar sveitir sem Davíð hefur verið í eru t.d. Dos Pilas, Buttercup og nú síðast Nykur þar sem hann hefur einnig sungið.

Eiður Ágúst Gunnarsson bassasöngvari (f. 1936) átti einnig afmæli á þessum degi en hann lést 2013. Eiður starfaði mestmegnis í Þýskalandi og Austurríki eftir söngnám en kom heim og fékkst við söngkennslu allt til dauðadags. Eftir hann liggja tvær plötur sem geyma söng hans.

Sverrir Garðarsson slagverksleikari (fæddur 1935) átti afmæli þennan dag en hann lést árið 2021. Sverrir lék lengi á slagverk með Sinfóníuhljómsveit Íslands en jafnframt á trommur með ýmsum sveitum hér fyrrum, hann starfrækti m.a. hljómsveitir í eigin nafni og lék með sveitum eins og Combói Eyþórs Þorlákssonar, Krummakvartettnum og Hljómsveit José Riba. Hann var þó fyrst og fremst framarlega í félags- og réttindamálum tónlistarmanna og starfaði m.a. sem formaður FÍH lengi vel auk annarra verkefna innan félagsins.

Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður (1947-2013) fæddist á þessum degi en mörg laga hans hafa orðið landsþekkt í flutningi hans sjálfs og annarra. Meðal laga sem Jóhann samdi má nefna Don‘t try to fool me, Eina ósk, Fiskurinn hennar Stínu, Við eigum samleið og Traustur vinur en einnig var hann í mörgum af þekktustu sveitum bítla- og hippatíðar, til að mynda Óðmönnum, Póker, Skuggum, Náttúru og Töturum svo dæmi séu tekin. Jóhann var upphafsmaður Músíktilrauna.

Júlíus Agnarsson átti einnig þennan dag en hann lést 2013. Júlíus sem fæddist 1953 hafði verið gítarleikari í ýmsum hljómsveitum, Scream, Terso, Andrew og Pelican áður en hann gerðist hljóðmaður og rótari, lengst um fyrir Stuðmenn og Þursaflokkinn, og einnig við hljóðsetningu á kvikmynda- og teiknimyndaefni.

Vissir þú að Dýraspítalinn gaf út plötu árið 1982 sem bar nafnið Komdu kisa mín?