Hinir geðþekku fautar (um 1995)

Hljómsveit sem ber nafnið Hinir geðþekku fautar starfaði undir lok 20. aldarinnar en mun mestmegnis hafa leikið í einkasamkvæmum eins og brúðkaupum innan vinahópsins.

Upplýsingar um þessa hljómsveit eru af skornum skammti, hún var líklega virkust á seinni hluta tíunda áratugarins en var endurvakin að minnsta kosti í eitt skipti síðar, árið 2007. Meðal meðlima Hinna geðþekku fauta er að finna síðar kunna tónlistarmenn, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Hafþór Ragnarsson og Haraldur Gunnlaugsson voru meðal þeirra en ekki liggur fyrir á hvaða hljóðfæri þeir léku.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa hljómsveit s.s. aðra meðlimi hennar, starfstíma o.fl.