
Caprý kvintett
Afar fáar og litlar heimildir finnast um hljómsveit úr Rangárvalla- eða Árnessýslu, sem gekk undir nafninu Caprí kvintett (Caprý) en þessi sveit mun hafa verið starfandi í kringum 1960, og var nýskyld Safír-sextettnum sem starfaði ekki löngu síðar.
Meðlimir Caprí munu hafa verið Pétur Karlsson saxófónleikari, Guðmundur Bjarnason gítarleikari, Bjarni Sigurðsson bassaleikari, Bragi Árnason trommuleikari og Guðmar Ragnarsson saxófón- og harmonikkuleikari. Söngkonan Eydís Lilja Eiríksdóttir frá Langholti starfaði með kvintettnum um hríð og einhvern tímann mun Ásbjörn Österby saxfónleikari hafa starfað með henni á einhverjum tímapunkti.














































