Heimild er um hljómsveit starfandi árið 1976 undir nafninu Fljóðatríó sem lék þá á dansleik hjá Skaftfellingafélaginu í Reykjavík.
Ekkert bendir til að Fljóðatríóið hafi tengingu við samnefnt tríó sem starfandi var fáeinum árum áður en óskað er eftir upplýsingum um meðlimi og hljóðfæraskipan þessarar sveitar.














































