
Forsíða fyrsta tölublaðs Musicu
Tage Ammendrup var afkastamikill á sviði tónlistar á sínum tíma, stóð í plötuútgáfu, rak hljóðfæra- og hljómplötuverslun (Drangey) auk þess að gefa út tónlistartímarit, fyrst tímaritið Jazz (1947) og síðan tímaritið Musica á árunum 1948-50.
Musica kom út alls ellefu sinnum og fjallaði um eins og sagði í kynningu „ýmis mál sem snerta tónlitarlíf og tónmenningu Íslendinga“. Efni blaðsins var nokkuð fjölbreytilegt en óhjákvæmilega varð klassísk tónlist þeirri léttari yfirsterkari í anda þess tíma.
Tage var önnum kafinn maður í ýmsum verkefnum og á þeim tíma var plötuútgáfan öðru mikilvægara að hans mati, því varð Musica undan að víkja.














































