Komdu í kvöld

Komdu í kvöld (Lag / texti Jón Sigurðsson) Komdu í kvöld út í kofann til mín þegar sólin er sest og máninn skín. Komdu hér ein því að kvöldið er hljótt og blómin þau sofa sætt og rótt. Við skulum vera hér heima og vaka og dreyma, vefur nóttin örmum hlíð og dal. Komdu í…

Kom þú, vor Immanúel

Kom þú, vor Immanúel (Lag / texti: erlendur sálmur / Sveinbjörn Egilsson) Kom þú, kom þú vor Immanúel og leys úr ánauð Ísrael, lýðinn þinn, sem í útlegð er, og hlekki ber unz sjálfan þig hann sér. Ó, fagnið nú! – Immanúel mun fæðast sínum Ísrael. Kom þú með dag á dimma jörð, þín væntir…

Kolakassinn

Kolakassinn (Lag / texti: þjóðlag / Gestur Guðfinnsson) Siggi datt í kolakassann, hæ fadderí fadde rallala. Vinnukonan átti’ að passa’ hann, hæ fadderí fadde rallala. Ef hún mamma vissi það, þá yrði hún alveg steinhissa. Hæ fadderí, hæ faddera, hæ fadderí fadde rallala. Anna datt í kolakassann, hæ fadderí fadde rallala. Vinnukonan átti’ að passa‘…

Kokkurinn

Kokkurinn (Lag / texti: ókunnur höfundur) Kokkurinn við kabyssuna stóð – fallera, kolamola oní hana tróð – fallera. Kámugur um kjaftinn bæði og trýn – fallera, kann hann ekki að skammast sín það svín – fallera. Tríðum banda tróðum banda skjótt – fallera, trúlofa sig aðra hverja nótt – fallera. En að morgni annað syngja…

Kvöldið er fagurt

Kvöldið er fagurt (Lag / texti: erlent lag / Ingólfur Þorsteinsson) Kvöldið er fagurt, sól er sest og sefur fugl á grein. Við skulum koma, vina mín og vera saman ein. Ég þekki einn fagran lítinn lund hjá læknum upp við foss. Þar sem gróa gullin blóm, þú gefur heitan koss. Þú veist að öll…

Nótt í Moskvu

Nótt í Moskvu* (Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason) Eitt sinn einn ég gekk yfir Rauðatorg og mér fylgdi undarleg sorg. Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá. Það var maíkvöld í Moskvuborg. Seinna sat ég einn grænum garði í, fuglar sungu dirrindídí. Ég var ungur þá, haldinn ungri þrá. Það var maíkvöld…

Kvennaskólapía

Kvennaskólapía (Lag / texti: erlent lag / Jónas Friðrik Guðnason) Hann öllum stundum var á veiðum og vildi í konur ná. Og skeytti meira um magn en gæði sem margur flaskar á. En loks það enti, með einni lenti sem alltof kröftug var svo allt sem áður hafði prufað var alveg gagnslaust þar. viðlag Hann…

Kvenmannslaus

Kvenmannslaus (Lag / texti: erlent þjóðlag / Steinn Steinarr) Kvenmannslaus í kulda og trekki kúri ég volandi, þetta‘ er ekki, ekki, ekki, ekki þolandi Nei þetta er ekki, ekki, ekki þolandi. Nei þetta er ekki, ekki, ekki þolandi. [á plötunni Árni Johnsen og tíu þúsund manna brekkukór – Brekkusöngur]

Kveikjum eld

Kveikjum eld (Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum) Kveikjum eld, kveikjum eld, kátt hann brennur sérhvert kveld, sérhvert kveld syngjum dátt. Örar blóð, örar blóð um æðar rennur, blikar glóð, blikar glóð, brestur hátt. Hæ, bálið brennur, bjarma á kinnar slær, að logum leikur ljúfasti aftanblær. Kveikjum eld, kveikjum eld, kátt hann…

Krummavísur

Krummavísur (Lag / texti: þjóðlag / Jón Thoroddsen) Krummi svaf í klettagjá kaldri vetrarnóttu. Verður margt að meini, verður margt að meini. Fyrr en dagur fagur, freðið nefið dregur hann undan stórum steini, undan stórum steini. Allt er frosið úti gor, ekkert fæst við ströndu mor. Svengd er metti mína, svengd er metti mína. Ef…

Krummavísa

Krummavísa (Lag / texti:  þjóðlag / þjóðvísa) Krummi krunkar út, kallar á nafna sinn. Ég fann höfuð af hrúti, hrygg og gæruskinn. Komdu nú og kroppaðu með mér krummi nafni minn. Komdu nú og kroppaðu með mér krummi nafni minn. [m.a. á plötunni Barnagælur: 20 sígild barnalög]

Krókurinn

Krókurinn (Lag / texti: Guðmundur Jónsson / Stefán Hilmarsson) Komdu nú með gamla guðstein út á kantinn, gamli dwellinn skýtur á sig grimmu skoti. Það er ekki nokkur spurning að hún er til deildar, þessi Svanfríður, þessi Svan- Svanfríður, -ríður. Gamli var í honkara hér áður fyrr í old days eftir að hafa lent í…

Kópavogsbragur

Kópavogsbragur (Lag / texti: erlent lag / Böðvar Guðlaugsson) Lít ég hér löngum lögregluna dýra með öllum öngum umferðinni stýra, hún er helst á róli við Hafnarfjarðarveginn, vitlausu megin. Út í flest fer hún ótrauð mjög að ganga, fílefldust fer hún á föstudaginn langa. Ég er satt að segja svei mér ekki frá því að…

Kóngur einn dag

Kóngur einn dag (Lag / texti: Magnús Eiríksson) Allt mitt líf er andartak í tímans hafi og öll þín tár þar tínast eitt og eitt. Kóngur einn dag, þann næsta ertu í bólakafi, þú reynir sund sem þýðir ekki neitt og eftir situr sársaukinn og stundum svolítil hamingja. Ef þú skyldir finna hana, í öllum…

Káta Víkurmær

Káta Víkurmær (Lag / texti: erlent lag / Jón frá Ljárskógum) Ég vil stilla mína strengi, ég vil syngja lítið ljóð um þann ljúfa draum sem út í bláinn fló. Ég vil syngja mína söngva um hið fagra unga fljóð sem að forðum ég unni meira en nóg. Ó þú kærastan mín kær, litla káta…

Karl faðir minn

Karl faðir minn (Lag / texti: Bjarni Hjartarson / Jóhannes úr Kötlum) Hann pabbi er skrýtinn og sköllóttur karl sem á skinnhúfu og tekur í nefið. Og bleksterkt kaffi og brennivín er það besta sem honum er gefið. Hann þvær sér ekki oft – og aldrei vel og er líka sjaldan á fundum. Það er…

Kanínan

Kanínan (Lag / texti: erlent lag / Rafn Jónsson og Reynir Guðmundsson) Hey kanína, komdu í partí. Jói splæsir í kvöld. Skelltu þér í tuskið, og hirtu ekki um hyskið. Hey kanína, na-na-na-na-na-na-na. Komdu með mér vina og líttu ekki á hina. Hey kanína, na-na-na-na-na-na-na. Strjúka, stynja, klípa, væla, utan um að taka. Skvetta, falla,…

Kalli á Hóli

Kalli á Hóli (Lag / texti: erlent lag / Bjarni Guðmundsson) Hvern þekkirðu í Flóanum kátari karl en hann Kalla-Kalla-Kalla-Kalla á Hóli? Og hver finnst þér æstari í kvenfólk og svall en hann Kalli-Kalli-Kalli-Kalli á Hóli? Hann syngur og drekkur og dansar og hlær og dreymandi‘ hann þráir hver einasta mær því enginn á landinu…

Kisutangó

Kisutangó (Lag / texti: erlent lag / Magnús Pétursson) Mín kisa á vökul eyru og veiðihár og rófu og viðkvæmt lítið trýni hún sleikir oft og þvær. Hún unir dátt við leiki og aldrei sýnir klær og engin kisa í heimi á svo fimar tær. viðlag Mín kisa dansar tangó, tangó, tangó, hún teygir sig…

Kibba kibba

Kibba kibba (Lag / texti: erlent lag / Sigurður Ágústsson) Kibba, kibba, komið þið greyin. Kibba, kibba, græn eru heyin. Kibba, kibba, gemsar og gamalær og golsóttur sauðarpeyinn. Nálgast nú sólin náttstaðinn, nú ertu fjarri vinurinn. Skyldum við hittast í morgunmund? Mild verður gleðin við endurfund. [m.a. á plötunni Samkór Kópavogs – Heyrum söng]

Kátir voru karlar

Kátir voru karlar (Lag / texti: ókunnur höfundur / Geir Sigurðsson) Kátir voru karlar á Kútter Haraldi. Til fiskiveiða fóru frá Akranesi og allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó. Af ánægju út að eyrum hver einasta kerling hló. Hún hló, hló, hún skelli, skellihló. Hún hló, hló, hún skelli, skellihló. Hún hló, hló,…

Kátir dagar

Kátir dagar (Lag / texti: erlent þjóðlag / Jenni Jónsson) Kátir dagar koma og fara, koma og fara, hvað er það að lifa og spara, lifa og spara, dátt við syngjum dönsum nætur, dönsum nætur, dröttumst oftast seint á fætur, seint á fætur. Vífin ungu vefjum örmum, vefjum örmum, villumst stundum gleymum hörmum, gleymum hörmum.…

Járnkarlinn

Járnkarlinn (Lag / texti: Bjartmar Guðlaugsson) Ég þekkti eitt sinn drengstaula sem fölur var og fár, með reytt og úfið hár, svo skyndibitablár. Ég sá oft þennan strákaula hann gugginn var og grár. Hann vældi þó að aldrei kæmu tár. Hann vildi aldrei borða neitt sem kraftinn gefið gat, hann bara sat og sat og…

Jarðarfarardagur

Jarðarfarardagur (Lag / texti: Þórir Baldursson / Sigurður Þórarinsson) Það gerðist hér suður með sj að Siggi á Vatnsleysu dó og ekkjan hans, Þóra, var ekki að slóra, til útfararveislu sig bjó, Það var logndrífa og ládauður sjór er hinn látni í gröfina fór og ekkjan með sjarmi brá svuntu að hvarmi, menn sáu, að…

Jólin, jólin

Jólin, jólin (Lag / texti: erlent lag / Ólafur Gaukur Þórhallsson) Jólin, jólin, jólin koma brátt, jólaskapið kemur smátt og smátt. Snjórinn fellur flygsum í, nú fagna litlu börnin því. Jólin, jólin, jólin koma brátt, jólabörnin þvo sér hátt og lágt, klæðast fínu fötin í og flétta hár og greiða. viðlag Hæ, hó og jólabjöllurnar,…

Jólasveinninn minn

Jólasveinninn minn (Lag / texti: erlent lag / Ómar Ragnarsson) Jólasveinninn minn, jólasveinninn minn ætlar að koma í dag með poka af gjöfum og segja sögur og syngja jólalag. Það verður gaman þegar hann kemur, þá svo hátíðlegt er. Jólasveinninn minn, káti kallinn minn kemur með jólin með sér. Jólasveinninn minn, jólasveinninn minn ætlar að…

Jólasveinar ganga um gólf

Jólasveinar ganga um gólf (Lag / texti: þjóðlag / þjóðvísa) Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi. Móðir þeirra sópar gólf og flengir þá með vendi Upp á stól stendur mín kanna, níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna. Jólasveinar ganga um gátt með gildan staf í hendi . Móðir þeirra…

Jólasveinar einn og átta

Jólasveinar einn og átta (Lag / texti: erlent lag / þjóðvísa) Jólasveinar einn og átta ofan koma af fjöllunum. Í fyrrakvöld þeir fóru að hátta og fundu’ ann Jón á völlunum. Andrés stóð þar utan gátta, það átti að færa hann tröllunum en þá var hringt í Hólakirkju öllum jólabjöllunum. Einnig hefur verið sungið Jólasveinar…

Jólakötturinn

Jólakötturinn (Lag / texti: Ingibjörg Þorbergs / Jóhannes úr Kötlum) Þið kannist við jólaköttinn, sá köttur var gríðarstór. Fólk vissi‘ekki hvaðan hann kom eða hvert hann fór. Hann glennti up glyrnurnar sínar, glóandi báðar tvær. Það var ekki heiglum hent að horfa í þær. Kamparnir beittir sem broddar, upp úr bakinu kryppa há, og klærnar…

Jólahjól

Jólahjól (Lag / texti: Skúli Gautason) Undir jólahjólatré er pakki. Undir jólahjólatré er voðalega stór pakki í silfurpappír og mamma og pabbi glotta‘ í laumi‘ í kampinn. viðlag Skyldi’að vera jólahjól? Skyldi’etta vera hjólajól? Skyldi’að vera jólahjól? Skyldi’etta  vera hjólajól? Úti’ í jóla- hjólabæ slær klukkan. Úti’ í jóla- hjólabæ hringir jóla- hjólaklukkan jólin inn.…

Jólagæsin

Jólagæsin (Lag / texti: Ólafur Haukur Símonarson) Jólagæsin ilmar. Það er hlýtt og gott í húsunum. Jótréð er sígrænt og það er úrvals öl í krúsunum. Jólakortin skríða inn um bréfalúgurnar, jólasveinar setja upp rauðu húfurnar. Jólasnjórinn fellur eins og vera ber, Jólafrostið herðir til að gleðjast þér. Jólalögin óma, það er gjafahrúga á gólfinu.…

Jól [1]

Jól [1] (Lag / texti: erlendur sálmur / Helgi Hálfdánarson) Velkomin vertu, vetrarperlan fríð, síblessuð sértu, signuð jólatíð. Guðs frá gæzku hendi, gulli dýrra hnoss. Þökk sé þeim, er sendi þig, svo gleðjir oss. Þú oss friðar boðskap ber, birtir grið og náð oss tér, læknar sviða, sárt er sker, súta léttir kross. Velkominn vertu,…

Jesús kristur og ég

Jesús kristur og ég (Lag / texti: Magnús Eiríksson / Vilhjálmur frá Skáholti) Hér sit ég einn með sjálfstraustið mitt veika á svörtum kletti er aldan leikur við. Á milli skýja tifar tunglið bleika og trillubátar róa fram á mið. Af synd og fleiru sál mín virðist brunnin. Ó sestu hjá mér, góði Jesú nú…

Jón og ég

Jón og ég (Lag / texti: erlent lag / Haraldur Á. Sigurðsson) Jón og ég við vorum eins og bræður, áttum föður sem var okkur kær. Ekki skorti okkur heldur mæður því ei þær reyndust færri vera en tvær. viðlag Lánið elti Jón en lét í friði mig, lánsami Jón, ég öfunda þig. Við vorum…

Játning

Játning (Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Tómas Guðmundsson) Enn birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr hver dagur sem ég lifði í návist þinni. Svo morgunbjört og fögur í mínum huga býr hver minning um vor sumarstuttu kynni. Og ástarljóð til þín verður ævikveðja mín er innan stundar lýkur göngu minni. Þá birtist mér…

Í grýttu hjarta

Í grýttu hjarta (Lag / texti: Rúnar Þór Pétursson / Heimir Már Pétursson) Í grýttu hjarta hrynja björg, hulu svipt af nýrri sýn. Sker í vatnið váleg braut, vætir litur rauður lín. Nóttin muldrar, mannahjörð mænir tóman himin á, færir þögla þakkargjörð þeim sem allt vilja fá. Sáð í skýin sætum draum, dreypt á dreggjum…

Í brekkunni (Þjóðhátíðarlag 1989)

Í brekkunni (Þjóðhátíðarlag 1989) (Lag / texti: Jón Ólafsson / Bjartmar Guðlaugsson) Þegar ágústnóttin nálgast nýt ég þess að vera til, tæli fram í hugann horfna huldumey. Að vera með í Dalnum er það eina sem ég vil, þá er gleðin fölskvalaus á Heimaey. Með rómantík og reyktan lunda rölti ég til vinafunda. Ástin enn…

Í Bolungarvíkinni

Í Bolungarvíkinni (Lag / texti Gísli Ólafsson) Í Bolungarvíkinni er björgulegt lífið þar bregðast ei veiðarnar árið um kring. Í lendingarstaðnum þó stundum sé ýfið er stormurinn næðir um fjallanna hring. Ef inn fyrir brimbrjótinn báturinn nær er borgið þeim formanni er lendingu fær. Mannvirkið stærsta sem staðurinn byggði var steinsteypuveggurinn langt fram í haf.…

Í bláum skugga

Í bláum skugga (Lag / texti: Sigurður Bjóla Garðarsson) Í bláum skugga af broshýrum reyr, við eigum pípu, kannski eilítið meir. Við eigum von og allt sem er dæmt og deyr. vúúúú… Við áttum kaggann, þúfur og þras og kannski dreitil í tímans glas. En hvað er það á við gott lyfjagras. vuúúú… Og þegar…

Í Betlehem er barn oss fætt

Í Betlehem var barn oss fætt (Lag / texti: erlent lag / Valdimar Briem) Í Betlehem var barn oss fætt, barn oss fætt. Því fagni gjörvöll Adams ætt. Hallelúja, hallelúja. Það barn oss fæddi fátæk mær, fátæk mær. Hann er þó dýrðar Drottinn skær. Hallelúja, hallelúja. Hann var í jötu lagður lágt, lagður lágt en…

Í leikskóla er gaman

Í leikskóla er gaman (Lag / texti: Ástgeir Ólafsson / höfundur ókunnur) Í leikskóla er gaman, þar leika allir saman, þeir leika úti og inni og allir eru með. Þeir hnoða, leira og lita, þið ættuð bara að vita hvað allir eru duglegir í leikskólanum hér. [m.a. á plötunni Sönglögin í leikskólanum 2 – ýmsir]

Í Hlíðarendakoti

Í Hlíðarendakoti (Lag / texti: Friðrik Bjarnason / Þorsteinn Erlingsson) Fyrr var oft í koti kátt, krakkar léku saman. Þar var löngum hlegið hátt, hent að mörgu gaman. Út um sléttar urðu þar einatt skrýtnar sögur þegar saman safnast var sumarkvöldin fögur. Eins við brugðum okkur þá oft á milli bæja til að kankast eitthvað…

Í Hallormsstaðarskógi

Í Hallormsstaðarskógi (Lag / texti: Svavar Benediktsson / Kristján frá Djúpalæk) Í Hallormsstaðarskógi er angan engu lík. Og dögg á grasi glóir sem gull í Atlavík. Og fljótsins svanir sveipast í sólarlagsins eld, og hlæjandi, syngjandi frelsinu fagnandi, fylgdumst við burtu það kveld. Úr Hallormsstaðarskógi ber angan enn í dag. Og síðan hefur sungið í…

Í grænni lautu

Í grænni lautu (Lag / texti: höfundur ókunnur) Í grænni lautu, þar geymi ég hringinn sem mér var gefinn en hvar er hann nú? Sem mér var gefinn en hvar er hann nú? [m.a. á plötunni Leikskólalögin – ýmsir]

Í fjarlægð

Í fjarlægð (Lag / texti: Karl O. Runólfsson / Valdimar H. Hallstað og Karl O. Runólfsson) Þig, sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur og fagrar vonir tengdir líf mitt við, minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar er horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá. Heyrirðu ei, hvern hjartað kallar á, heyrirðu ei storminn kveðju mína…

Í Eyjum

Í Eyjum (Lag / texti: erlent lag / Örn Arnarson) Manstu okkar fyrsta fund forðum daga í Eyjum. Barnaleg og blíð í lund barstu af öðrum meyjum. Ég var ungur eins og þú, einn af þorpsins snáðum. Sama von og sama trú, sama þrá hjá báðum. Bernskuleikir breyttust þá, blóm úr knöppum sprungu. Nýjum lit…

Í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1999)

Í Dalnum (Þjóðhátíðarlag 1999) (Lag / texti: Helgi Jónsson) Heimaklettur heilsar hress að vanda, Herjólfsdalur býður góðan dag. Gleði ríkir milli álfa og anda, á manna meðal raula lítið lag. Er kvölda tekur, færast yfir mannskapinn undurfagrir straumar, ljúfur blær. Ástin kviknar, ljósadýrð um himininn kveikt í hjörtum okkar alltaf fær. viðlag Brekkusöngur, bálkösturinn, allt…

Í dag er glatt

Í dag er glatt (Lag / texti: erlent lag / Valdimar Briem) Í dag er glatt í döprum hjörtum, því Drottins ljóma jól. Í niðamyrkrum nætur svörtum upp náðar rennur sól. Er vetrar geisar stormur stríður, þá stendur hjá oss friðarengill blíður, og þegar ljósið dagsins dvín, oss Drottins birta kringum skín. Oss Drottins birta…

Ísland er land þitt

Ísland er land þitt (Lag / texti: Magnús Þór Sigmundsson / Margrét Jónsdóttir) Ísland er land þitt og ávallt þú geymir Ísland í huga þér hvar sem þú ferð. Ísland er landið sem ungan þig dreymir, Ísland í vonanna birtu þú sérð. Ísland í sumarsins algræna skrúði, Ísland með blikandi norðljósatraf, Ísland er feðranna afrekum…

Ísland

Ísland (Lag / texti: erlent lag / Jón Thoroddsen) Ó fögur er vor fósturjörð um fríða sumardaga, er laufin grænu litka börð og leikur hjörð í haga. En dalur lyftir blárri brún mót blíðum sólarloga og glitrar flötur, glóir tún og gyllir sunna voga. Og vegleg jörð vor áa er með ísi þakta tinda, um…