
María Björk Sverrisdóttir
Að þessu sinni eru þrjú tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Stórsöngvarinn Sigurður Johnny Þórðarson (Siggi Johnny) er sjötíu og fimm ára í dag. Siggi var upp á sitt besta á blómaskeiði rokksins á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, söng þá með ýmsum sveitum eins og hljómsveitum Svavars Gests, Björns R. Einarssonar og José Riba, auk KK-sextett og ýmsum öðrum. Siggi lagði sönginn til hliðar að mestu þegar Bítlarnir komu til sögunnar en kom inn sterkur síðar á sýningar sem haldar voru rokkinu til heiðurs á Broadway og Hótel Íslandi.
María Björk Sverrisdóttir söngkona, söngkennari, útgefandi og margt fleira, er fimmtíu og tveggja ára. María Björk lærði bæði djass- og klassískan söng og hefur sungið inn á fjölmargar plötur, m.a. undir aukasjálfinu Aría. Hún hefur þó að mestu helgað sig tónlist fyrir börn, stofnaði á sínum tíma Söngskóla Maríu Bjarkar þar sem hún kenndi börnum söng ásamt Sigríði Beinteinsdóttur, og gaf út sem Söngvaborg. Hún uppgötvaði m.a. Jóhönnu Guðrúnu í því samhengi og var umboðskona hennar um tíma. María Björk hefur einnig komið sterk inn sem lagahöfundur í Eurovision og Sæluviku Skagfirðinga hin síðustu ár.
Að síðust skal hér nefnd Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir ein Nylon / Charlies söngsystra en hún er þrjátíu og eins árs gömul í dag. Flestir muna eftir Nylon ævintýrinu en sveitin var stofnuð vorið 2004, þær fluttust síðar til Bretlands og síðar Bandaríkjanna undir nafninu The Charlies, en þá hafði fækkað í hópnum. The Charlies er enn starfandi eftir því er best er vitað.














































