Afmælisbörn 24. nóvember 2016

Einar Kristjánsson

Einar Kristjánsson

Nokkrir tónlistarmenn koma við sögu afmælisskrár Glatkistunnar að þessu sinni:

Sigurdór Sigurdórsson söngvari er sjötíu og átta ára, hann söng með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma s.s. hljómsveitum Svavars Gests og Eyþórs Þorlákssonar. Hann er þó þekktastur fyrir flutning sinn á Þórsmerkurljóðinu sem flestir þekkja undir nafninu María María.

Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile er fimmtíu og tveggja ára gamall í dag. Hann er líkast til þekktastur fyrir veru sína í Todmobile sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma en hann starfrækti einnig dúettinn Bong. Áður hafði hann verið í sveitum eins og Kolossus-band og Tappa tíkarrassi. Eyþór hefur einnig unnið við kvikmyndatónlist, stýrt upptökum og sungið barnalög. Hann hefur í seinni tíð snúið sér meira að stjórnmálum en tónlist.

Eggert Gíslason í Maus er fertugur á þessum degi og er því stórafmælisbarn dagsins. Hann var bassaleikari í sveitinni, sem sigraði Músíktilraunir 1994 og gaf út nokkrar plötur í kjölfarið.

Þórarinn Þeyr Rúnarsson trommuleikari Meistara dauðans er þrettán ára gamall en þessi ungi trommuleikari hefur vakið mikla athygli með hljómsveit sinni, sem gaf út samnefnda plötu fyrir ári síðan

Einnig hefði Einar Kristjánsson óperusöngvari (f. 1910) átt afmæli á þessum degi en hann lést 1966. Einar sem var tenór starfaði allan sinn söngferil erlendis, mest í Danmörku og Þýskalandi og víst er að ef ekki hefði komið til heimsstyrjaldarinnar síðari hefði hann orðið stærra nafn. Hann söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur.