
Magnús Þór Sigmundsson
Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:
Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður er sextíu og níu ára gamall. Magnús Þór er auðvitað kunnastur fyrir samstarf sitt með Jóhanni Helgasyni, sbr. Magnús & Jóhann, en saman störfuðu þeir líka sem Pal brothers og í hljómsveitinni Change. Magnús Þór hefur ennfremur gefið út fjöldann allan af sólóplötum og þar af eru nokkrar ætlaðar börnum. Mörg laga Magnúsar Þórs hafa notið vinsælda og meðal þeirra má nefna Blue jean queen, Ást, Álfar, Dag sem dimma nátt, Pósturinn Páll, Jörðin sem ég ann og Ísland er land þitt, sem allir þekkja.
Hörður G. Ólafsson bassaleikari og lagahöfundur úr Skagafirðinum er sextíu og fjögurra ára. Hörður samdi m.a. lagið Eitt lag enn, sem Stjórnin flutti í úrslitum Eurovision keppninnar 1990 í Júgóslavíu en hann hefur aukinheldur gefið út sólóefni. Hörður hefur starfað í ýmsum hljómsveitum, á meðal þeirra má nefna Styrmingu, Norðan 3, Herramenn, Stöff, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar og Neista.