Afmælisbörn 14. febrúar 2019

Sigríður Sigurðardóttir

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú að þessu sinni:

Jón Ingi Valdimarsson bassaleikari Greifanna frá Húsavík er fimmtíu og fjögurra ára gamall í dag. Jón Ingi hefur verið í Greifunum frá upphafi en sveitin gekk fyrst undir Special treatment nafninu.

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari er þrjátíu og fimm ára en hann þekkja allir. Víkingur nam í Bandaríkjunum og hér heima, lauk meistaranámi í píanóleik 2008 frá Juillard og hefur unnið allan af verðlaunum í listgrein sinni. Hann hefur ennfremur gefið út og leikið á plötur, annast tónlistarþáttagerð í sjónvarpi, og rekið eigið útgáfufyrirtæki.

Þá hefði kórstjórnandinn og tónmenntakennarinn Sigríður Sigurðardóttir átt afmæli á þessum degi. Sigríður (fædd 1945) hafði m.a. starfrækt ásamt eiginmanni sínum Eddukórinn sem gaf út tvær plötur, áður en þau fluttust á Hvolsvöll þar sem þau rifu upp tónlistarlífið sem stjórnendur Tónlistarskóla Rangæinga. Þar stjórnaði hún m.a. barnakór auk þess sem þau hjónin stofnuðu Samkór Rangæinga. Sigríður lést árið 1996.