Afmælisbörn 2. mars 2019

Jón Bjarni Pétursson

Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar.

Fyrst skal nefna Jón Bjarna Pétursson gítarleikara hljómsveitarinnar Diktu en hann kemur m.a. við sögu í hinu þekkta lagi Thank you, sem ómaði um allt land 2009 og 10. Jón Bjarni er þrjátíu og sjö ára gamall í dag.

Einnig á bassaleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín, Guðmundur Óskar Guðmundsson afmæli en hann er þrjátíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Hann var einnig áður í hljómsveitunum Imnesium, Heiðurspiltum, Mekkamoos Tilbury og Svitabandinu svo aðeins fáeinar séu nefndar.