
Mono system
Hljómsveitin Mono system (Monosystem) var eins konar skólahljómsveit innan Menntaskólans á Laugarvatni veturinn 1964-65.
Meðlimir sveitarinnar voru þeir Þorvaldur Örn Árnason bassaleikari, Stefán Ásgrímsson gítarleikari, Jens Þórisson gítarleikari, Páll V. Bjarnason hljómborðsleikari og Guðmundur Harðarson trommuleikari.
Mono system lék á dansleikjum og öðrum samkomum mestmegnis innan ML og annarra skóla í héraðinu þennan vetur, en næsta vetur á eftir höfðu orðið mannabreytingar á sveitinni og skiptu þeir þá um nafn, kölluðu sig Hrafna.














































