Afmælisbörn 12. júní 2020

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jakob Smári Magnússon bassaleikari er fimmtíu og sex ára gamall á þessum degi. Jakob hóf sinn feril með hljómsveitum eins og Tappa tíkarass og Das Kapital en síðar lék hann með Síðan skein sól / SSSól, Grafík, Todmobile og Pláhnetunni svo einungis fáeinar af þeim þekktustu…

Afmælisbörn 11. júní 2020

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar tvö: Jón Þór Hannesson framleiðandi er sjötíu og sex ára gamall í dag. Hann hóf sinn tónlistartengda feril með rekstri ólöglegrar útvarpsstöðvar 1962 ásamt Pétri Steingrímssyni og var handtekinn fyrir uppátækið. Jón Þór var einnig í hljómsveitinni Tónum um miðjan sjöunda áratuginn áður en hann sneri sér upptökufræðum, þar sem…

Guðrún Á. Símonar (1924-88)

Söngkonan Guðrún Á. Símonar var ein af skærustu söngkonum sinnar samtíðar og var dáð og dýrkuð af þjóðinni. Hún var í raun jafnvíg á dægurlaga- og óperusöng (telst klárlega vera fyrsta óperusöngkonan sem starfaði á Íslandi) og gaf út fjölda platna. Guðrún var stór karakter, hreinskiptin og tilfinningarík, ann köttum og var mikill dýravinur, það…

Guðrún Á. Símonar – Efni á plötum

Guðrún Á. Símonar – Svörtu augun / Af rauðum vörum (Ich spür in mir) [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: IM 15 Ár: 1952 1. Svörtu augun 2. Af rauðum vörum (Ich spür in mir) Flytjendur: Guðrún Á. Símonar – söngur Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar: – Bjarni Böðvarsson – [?] – J. Felzmann – fiðla –…

Guðrún Jacobsen (1930-2022)

Guðrún Jacobsen rithöfundur (fædd 1930) var fleira til lista lagt en ritstörf, hún var drátthög, málaði og hélt málverkasýningu en var einnig músíkölsk, söng og samdi tónlist. Sem barn hafði Guðrún sungið með barnakórnum Sólskinsdeildinni og á árunum eftir stríð söng hún með Hljómsveit Karls Jónatanssonar í Mjólkurstöðinni, og e.t.v. fleiri sveitum. Þá kom hún…

Guðrún Böðvarsdóttir (1902-36)

Guðrúnu Böðvarsdóttur var margt til lista lagt og afrekaði heilmikið þótt hún lægi sjúk af berklum lungann úr ævinni, eftir hana liggur m.a. þekktur sálmur. Guðrún var fædd á Rafnseyri (Hrafnseyri) við Arnarfjörð 1902 en fluttist til Reykjavíkur ásamt móður sinni þegar foreldrar hennar skildu. Bræður hennar tveir voru Ágúst og Bjarni sem báðir eru…

Guðni S. Guðnason – Efni á plötum

Sverrir Guðjónsson – 13 ára ásamt Guðna S. Guðnasyni og félögum hans [ep] Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: GEOK 251 Ár: 1963 1. Sólbjartar nætur 2. Nú í kvöld 3. Piparsveinapolki 4. Suðurnesjavalsinn 5. Reykjavíkurþræll Flytjendur: Sverrir Guðjónsson – söngur Guðni S. Guðnason og félagar: – Guðni S. Guðnason – harmonikka – Árni ÍSleifsson – píanó –…

Guðni S. Guðnason (1926-93)

Harmonikkuleikarinn Guðni S. Guðnason lék með fjölmörgum hljómsveitum á blómaskeiði danshljómsveita á fimmta og sjötta áratugnum, hann varð síðar kunnur hljóðfæraviðgerðamaður. Guðni Sigþór Guðnason var fæddur á Eskifirði árið 1926 og fluttist þaðan til Reykjavíkur á stríðsárunum, 1943. Þá þegar var hann kominn með nokkra reynslu í dansleikjaspilamennsku en hann hafði þá leikið á harmonikku…

Guðmundur Jónsson [1] – Efni á plötum

Guðmundur Jónsson [78 sn.] Útgefandi: Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur / Fálkinn Útgáfunúmer: HSH HMV JO 97 Ár: 1949 1. Heimir 2. Mamma Flytjendur: Guðmundur Jónsson – söngur Fritz Weizzhappel – píanó     Guðmundur Jónsson [78 sn.] Útgefandi: Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur / Fálkinn Útgáfunúmer: HSH HMV JO 99 Ár: 1949 1. Bikarinn 2. Rósin Flytjendur: Guðmundur…

Guðmundur Jónsson [1] (1920-2007)

Stórsöngvarinn Guðmundur Jónsson er íslensku þjóðinni minnisstæður af ýmsum ástæðum, auðvitað fyrst og fremst fyrir söng sinn en hann er einn ástsælasti óperusöngvari þjóðarinnar fyrr og síðar, sem sendi frá sér fjölda platna og söng á hundruðum tónleika og óperum hér heima í stað þess að freista gæfunnar úti í hinum harða söngheimi, þá var…

Gullfoss [1] (1998 / 2001)

Gullfoss mun hafa verið gleðisveit mönnuð þekktum tónlistarmönnum sem starfaði í stuttan tíma – tvisvar af því er virðist. Annars vegar var það sumarið 1998 en þá voru meðlimir sveitarinnar Sigurður Gröndal gítarleikari, Björn Jörundur Friðbjörnsson söngvari, Ólafur Hólm trymbill, Ingólfur Guðjónsson hljómborðsleikari og Ingi S. Skúlason bassaleikari en auk þess mun saxófónleikari hafa verið…

Gullfiskar (1988-89)

Hljómsveitin Gullfiskar starfaði í fáeina mánuði veturinn 1988-89 en hún var sett saman til að kynna sólóplötu Herdísar Hallvarðsdóttur (Grýlurnar, Islandica o.fl.) sem bar einmitt titilinn Gullfiskar og kom út um það leyti. Meðlimir sveitarinnar voru meðal þeirra sem unnu að plötu Herdísar en þeir voru auk hennar sjálfrar sem söng og lék á bassa,…

Gulleyjan (1989-91)

Hljómsveitin Gulleyjan (einnig nefnd Ívar og gulleyjan) starfaði í kringum 1990 (nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir) og sendi frá sér tvö lög á safnplötum. Meðlimir Gulleyjunnar voru þeir Ívar Sigurbergsson söngvari og gítarleikari, Jón Borgar Loftsson trommuleikari, Jóhann Ó. Ingvarsson hljómborðsleikari og Högni Hilmisson bassaleikari, þannig var sveitin skipuð á safnplötunni Hitt og þetta aðallega…

Gullið í ruslinu (1998-2000)

Dúettinn Gullið í ruslinu kom fram á sjónarsviðið haustið 1998 og kom fram á pöbbum höfuðborgarsvæðisins í nokkur skipti fram eftir árinu 2000. Dúettinn skipuðu þeir Björn Hildir Reynisson og Júlíus Hans Þórðarson en ekki liggja fyrir upplýsingar um hljóðfæraskipan.

Atli Ólafsson – Efni á plötum

Guðmundur Þorsteinsson og hljómsveit Elo Magnussen [78 sn] Útgefandi: Hljóðfærahús Reykjavíkur Útgáfunúmer: Polyphone XS 50558 Ár: 1936 1. Nú veit ég 2. Top hat Flytjendur: Guðmundur Þorsteinsson (Atli Ólafsson) – söngur Hljómsveit Elo Magnussen: – Elo Magnussen – fiðla [?] – engar upplýsingar um aðra flytjendur   Guðmundur Þorsteinssonu og hljómsveit Elo Magnussen [78 sn.]…

Atli Ólafsson (1913-85)

Atli Ólafsson telst að öllum líkindum vera fyrsti dægurlagasöngvari Íslands, alltént var hann fyrstur til að syngja inn á plötu en það gerði hann undir dulnefninu Guðmundur Þorsteinsson. Atli Ólafsson var fæddur 1913 í Kaupmannahöfn en fluttist tveggja ára gamall til Íslands, hann var sonur Ólafs Friðrikssonar ritstjóra, verkalýðsforkólfs og kunns jafnaðarmanns og Önnu Friðriksson…

Afmælisbörn 10. júní 2020

Fjögur afmælisbörn koma við sögu hjá Glatkistunni á þessum degi: Hugi Guðmundsson tónskáld er fjörutíu og þriggja ára gamall í dag, hann nam tónsmíðar hér heima, auk mastersgráða í Danmörku og Hollandi og hefur unnið til ýmissa verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín, m.a. á Íslensku tónlistarverðlaununum í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Hugi hefur starfað…

Afmælisbörn 9. júní 2020

Glatkistan hefur þrjú afmælisbörn á skrá í dag sem eitthvað hafa með tónlist að gera: Guðni Már Henningsson útvarpsmaður með meiru, ljóðskáld og tónlistarmaður er sextíu og átta ára í dag. Guðni Már hefur starfað við vinsældir hjá Ríkisútvarpinu í áratugi og hefur náð eins konar trúnaðarsambandi við marga af þeim hlustendum sem hlusta á…

Afmælisbörn 8. júní 2020

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: Sindri (Þórsson) Eldon er þrjátíu og fjögurra ára á þessum degi. Sindri hefur gefið út sólóplötuna Bitter and resentful en hann hefur verið viðloðandi tónlist með einum eða öðrum hætti nánast frá fæðingu, mest í hljómsveitum en þeirra á meðal má nefna Dáðadrengi, Slugs, Desidiu, Dynamo…

Afmælisbörn 7. júní 2020

Í dag eru afmælisbörn á skrá Glatkistunnar tvö talsins en þau eru eftirfarandi: Tvíburabræðurnir Kristinn og Guðlaugur Júníussynir eru fjörutíu og fjögurra ára gamlir en þeir eru eins og kunnugt er af mikilli tónlistarfjölskyldu. Þeir bræður hafa mikið unnið saman í tónlist sinni, voru í hljómsveitum eins og Tjalz Gissur, Vinyl (Vínyll), Lace, Jet Black…

Afmælisbörn 6. júní 2020

Fimm afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar á þessum degi: Bubbi Morthens (Ásbjörn Kristinsson) er sextíu og fjögurra ára gamall í dag. Honum skaut á stjörnuhimininn með eftirminnilegum hætti 1980 þegar hann spratt fram með hljómsveitinni Utangarðsmönnum og sólóplötu um svipað leyti. Í kjölfarið fylgdu sólóplötur sem skipta um fjórum tugum auk hljómsveita sem flestar hafa…

Afmælisbörn 5. júní 2020

Í dag eru afmælisbörnin sex talsins: Fyrstan skal telja Einar Val Scheving trommuleikara og tónskáld en hann er fjörutíu og sjö ára. Einar sem hefur leikið á ógrynni platna annarra tónlistarmanna, hefur einnig starfað með hljómsveitum eins og Stórsveit Reykjavíkur, Atlantshafsbandalaginu, Icelandic All Star Jazzband og Gleðigjöfunum auk margra annarra. Hann hefur gefið út þrjár…

Afmælisbörn 4. júní 2020

Afmælisbörn dagsins á Glatkistunni í dag eru fimm talsins: Jörundur (Arnar) Guðmundsson eftirherma og skemmtikraftur á sjötíu og þriggja ára afmæli í dag. Jörundur fór mikinn í skemmtanabransanum einkum á áttunda og níunda áratug liðinnar aldar þar sem hann skemmti með eftirhermu- og skemmtiprógrammi sínu um land allt. Hann gaf ennfremur út plötu á sínum…

Guðmundur Ingólfsson [2] (1939-91)

Guðmundur Ingólfsson djasspíanisti lést langt um aldur fram snemma á tíunda áratug síðustu aldar en hann hafði þá um árabil verið meðal fremstu djasstónlistarmanna hér á landi, hann hafði tónlist að aðalstarfi í áratugi og fáir léku jafn oft og hann á opinberum vettvangi, ýmist með danshljómsveitum framan af eða með tríóum, kvartettum og sveitum…

Gulla Vala & tillarnir (1997)

Gulla Vala & tillarnir var tónlistarhópur eða hljómsveit sem kom fram með tónlistaratriði á tónleikum í Norðurkjallara Mennaskólans við Hamrahlíð snemma árs 1997, þeir tónleikar voru síðan hljóðritaðir og gefnir út á plötunni Tún um vorið. Meðlimir Gullu Völu & tillanna voru þau Gunnlaug Þorvaldsdóttir söngkona, Kári Esra Einarsson gítarleikari, Valgerður Einarsdóttir saxófónleikari, Viðar Örn…

Guðmundur Kristjánsson (1901-86)

Lítið hefur verið ritað um tenórsöngvarann Guðmund Kristjánsson sem flutti ungur til útlanda til að mennta sig í söng og starfaði svo lungann úr ævinni vestur í Bandaríkjunum. Ein tveggja laga plata kom út með honum hér á landi en ekki liggja fyrir upplýsingar um útgáfusögu erlendis. Guðmundur Jónasson Kristjánsson fæddist í Búðardal árið 1901…

Guðmundur Haukur Þórðarson – Efni á plötum

Keflavíkurkvartettinn [45 rpm] Útgefandi: Ásaþór Keflavík / Hljóðfæraverslun Sigríðar Helgadóttur Útgáfunúmer: HSH 45 – 1025 Ár: 1968 1. Bandúra 2. Haustlauf 3. Seljadalsrósin 4. Vín, vín þú aðeins ein Flytjendur: Keflavíkurkvartettinn: – Haukur Þórðarson – söngur – Sveinn Pálsson – söngur – Ólafur R. Guðmundsson – söngur – Jón M. Kristinsson – söngur hljómsveit undir stjórn Þóris Baldurssonar: – Þórir Baldursson – [?]…

Guðmundur Haukur Þórðarson (1930-2023)

Tenórsöngvarinn Guðmundur Haukur Þórðarson söng með karlakórum í Keflavík og Hafnarfirði í áratugi en hann sendi aukinheldur frá sér plötu með söng sínum. (Guðmundur) Haukur Þórðarson  (f. 1930) kom upphaflega úr Dölunum og hafði alltaf taugar þangað en var búsettur í Keflavík frá fimm ára aldri, starfsvettvangur hans lungann úr ævinni var sendibílstjórakeyrsla. Haukur mun…

Guðmundur Ingólfsson [2] – Efni á plötum

Bob Magnusson group – Jazzvaka Útgefandi: Jazzvakning records Útgáfunúmer: JV 002 Ár: 1981 1. Seven specials 2. I´m getting sentimental over you 3. Þrír húsgangar 4. Móðir mín í kví kví 5. You’d be so nice to come home to Flytjendur: Guðmundur Ingólfsson – píanó Bob Magnússon – kontrabassi Guðmundur Steingrímsson – trommur Viðar Alfreðsson – trompet og flygelhorn Rúnar Georgsson – saxófónn…

Guðrún A. Kristinsdóttir (1930-2012)

Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari er án vafa einn þekktasti undirleikari íslenskrar tónlistarsögu en hún lék á sínum tíma undir söng flestra einsöngvara og kóra sem eitthvað kvað að, þá má píanóleik hennar heyra á fjölda útgefinna platna. Guðrún Anna Kristinsdóttir fæddist á Akureyri árið 1930 og ólst upp þar í bæ, hún naut leiðsagnar í…

Guðni Þ. Guðmundsson (1948-2000)

Guðni Þ. Guðmundsson kom að íslensku tónlistarlífi með margvíslegum hætti, hann stjórnaði kórum, kenndi, spilaði með hljómsveitum en var fyrst og fremst organisti og fyrir það er hann líkast til þekktastur. Guðni Þórarinn Guðmundsson fæddist í Vestmannaeyjum 1948 og ólst þar upp, fyrstu kynni hans af tónlist var píanónám en hann lærði á píanó sem…

Guðni Rúnar Agnarsson (1956-)

Guðni Rúnar Agnarsson var kunnur dagskrárgerðarmaður í útvarpi og hélt utan um ýmsa þætti sem margir hverjir fjölluðu um tónlist, þekkastur þeirra var þátturinn Áfangar sem hann hafði umsjón með ásamt Ásmundi Jónssyni. Guðni Rúnar (f. 1956) hafði lítillega verið í tónlist á unglingsárum, spilaði á gítar og hljómborð og var í hljómsveitinni Lost sem…

Guðrún Þorsteinsdóttir [1] (1911-90)

Guðrún S. Þorsteinsdóttir messósópran-söngkona og söngkennari starfaði við tónlist alla sína tíð, framan af sem söngkona samhliða kennslu en síðar eingöngu við kennslu, hún stjórnaði einnig kórum og var Barnakór Hlíðaskóla líklega eitt hennar þekkasta afkvæmi en sá kór gaf m.a. út plötu. Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir fæddist á Seyðisfirði sumarið 1911 en flutti fjögurra ára…

Guðrún Waage (1859-98)

Guðrún Waage var ein allra fyrsta söngkona íslenskrar tónlistarsögu, hún kom fram á tónleikum og kenndi einnig hljóðfæraslátt og söng. Guðrún Halla Eggertsdóttir Waage fæddist 1859 og lítið er um hana vitað annað en að hún var kaupmannsdóttir, dóttir Eggerts Waage. Guðrún var einn meðlimur Söngfélagsins Hörpu og söng með þeim á tónleikum árið 1884,…

Gull í mund (1996)

Erfitt er að finna heimildir um hljómsveit sem virðist hafa gengið undir nafninu Gull í mund, hugsanlega var ekki um starfandi hljómsveit að ræða heldur band sem sett var saman einungis til að leika lagið Þú lætur mig loga, flutt af Sigurði Höskuldssyni á safnplötunni Lagasafnið No. 5 – Anno 1996. Með Sigurði (sem syngur…

Afmælisbörn 2. júní 2020

Tvö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu á vef Glatkistunnar í dag: Þorgeir Ástvaldsson mannfræðingur og dagskrárgerðarmaður er fyrra afmælisbarn dagsins, hann er sjötugur í dag og á því stórafmæli. Hann varð þekktur strax á barnsaldri þegar hann lék með hljómsveitinni Tempó sem hitaði meðal annars upp fyrir bresku sveitina Kinks þegar þeir komu til landsins…

Afmælisbörn 1. júní 2020

Á þessum fyrsta degi júnímánaðar eru sex afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Ingólfur Guðjónsson hljómborðsleikari er sextíu og eins árs gamall í dag. Ingólfur lék með fjölda þekktra og óþekktra sveita hér áður, fyrst með sveitum eins og Árbliki og Boy‘s brigade en síðar komu þekktari sveitir eins og Rikshaw, Loðin rotta (síðar Sköllótta músin), Pláhnetan…