Afmælisbörn 25. ágúst 2021

Jón Kjartan Ingólfsson

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá hjá Glatkistunni:

Magnús Eiríksson laga- og textahöfundur, gítarleikari og söngvari er sjötíu og sex ára gamall. Magnús er einn allra helsti lagahöfundur íslenskrar tónlistarsögu, á að baki sólóferil sem og feril með hljómsveitum á borð við Mannakorn, Brunaliðið, Pónik og Blúskompaníið auk samstarfs við Kristján Kristjánsson (KK) og fleiri. Magnús hefur einnig í gegnum tíðina starfað með ótal óþekktum sveitum. Meðal laga sem Magnús hefur samið má nefna Ég er á leiðinni, Garún, Línudans, Þjóðvegurinn, Reyndu aftur, Óbyggðirnar kalla, Braggablús, Komdu í partí og Gleðibankinn en en síðast talda lagið var árið 1986 fyrsta framlag Íslands til Eurovision keppninnar. Magnús rak um árabil hljóðfæraverslunina Rín, hann hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna 1999.

Jón Kjartan Ingólfsson bassaleikari er fimmtíu og fimm ára gamall á þessum degi. Auk þess að hafa leikið inn á fjöldann allan af plötum hefur Jón Kjartan verið í mörgum hljómsveitum, þekktum sem óþekktum. Fiðringur, Kólga, Skytturnar, Tónabræður, Twist & bast, South River band og Stuðkompaníið eru allt hljómsveitir sem hann hefur starfað með en með síðast töldu sveitinni sigraði hann Músíktilraunir Tónabæjar árið 1987.

Vissir þú að nafn hljómsveitarinnar Sigtryggur dyravörður vísar til þekkts glímukóngs á árum áður sem einnig hafði komið við sögu í lagi með Þursaflokknum?