
Hrafn Björgvins
Sjö afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni:
Benóný Ægisson (Benni Ægizz) leikari og tónlistarmaður er sextíu og níu ára í dag. Benóný hefur sent frá sér sólóplötur, nú síðast fyrir fáeinum vikum, en hann hefur einnig verið viðloðandi hljómsveitir eins og Kamarorghesta, Sódó ódó og Orghesta.
Herdís Hallvarðsdóttir er sextíu og fimm ára gömul í dag. Herdís var bassaleikari Grýlnanna á sínum tíma en var líka í Hálfu í hvoru, Karma, Teppinu hennar tengdamömmu og Islandicu. Herdís hefur gefið út tvær sólóplötur og starfrækir útgáfufyrirtækið Hljóðbók ásamt eiginmanni sínum Gísla Helgasyni.
Erpur Þórólfur Eyvindarson (Blaz Roca / Johnny National) rappari og tónlistarmaður er fjörutíu og fjögurra ára. Erpur hefur starfað með rapp- og hiphopsveitum eins og XXX Rottweiler hundum, Supah syndical og Hæstu hendinni en einnig komið fram á plötum annarra rappara. Hann gaf út sólóplötuna Velkomin til Kópacobana árið 2010.
Logi Pedro Stefánsson bassaleikari Retro Stefson er tuttugu og níu ára gamall en hann hefur verið í hljómsveitum frá unga aldri. Hann hefur einnig starfrækt dúettinn Young Karin (áður Highlands), gefið út efni undir aukasjálfinu Pedro Pilatus og starfað með fjöldanum öllum af öðru tónlistarfólki.
Söngvarinn Oddur Hrafn Stefán Björgvinsson eða bara Krummi Björgvins er fjörutíu og tveggja ára gamall í dag. Hann vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Mínus sem sigraði Músíktilraunir 1999 en hann hefur bæði fyrr og síðar starfað með hljómsveitum eins og Esju, Legend, Moody company, Ungblóð og The Bad habits. Þá hefur hann bæði sent frá sér sólóefni og sungið á plötum annarra listamanna.
Elísabet Erlingsdóttir sópransöngkona hefði einnig átt þennan afmælisdag en hún lést 2014. Elísabet (f. 1940) nam söngfræði sín í Þýskalandi, kom heim og fékkst við söngkennslu en hún var aðalsöngkennari Listaháskólans til dánardags. Söng Elísabetar má heyra á tveimur sólóplötum hennar en einnig söng hún inn á fjölda annarra platna, m.a. sem einsöngvari með Karlakór Reykjavíkur og Kvennakór Suðurnesja.
Þá átti ennfremur Sigurjón Brink (Róbertsson) afmæli á þessum degi. Sigurjón (1974-2011) var fjölhæfur, söng, lék á gítar og trommur í hljómsveitum eins og In bloom og The Flavors áður en hann varð áberandi í undankeppnum Eurovision. Lag hans Aftur heim, hafði komist í úrslit keppninnar í ársbyrjun 2011 þegar Sigurjón lést af völdum heilablóðfalls. Félagar hans fluttu lagið í úrslitum og sigruðu undir nafninu Vinir Sjonna, og fóru með það í lokakeppni Eurovision. Sigurjón var nokkuð viðloðandi leikhús, var einn af stofnendum Vesturports, og gaf út sólóplötu 2009.
Vissir þú að KK (Kristján Kristjánsson) og Ellen Kristjánsdóttir söngkona eru systkini?