Tónlistarmaðurinn Myrkvi er að senda frá sér nýja smáskífu en hún ber titilinn Villt fræ og lítur dagsins ljós á morgun, föstudag á tónlistarveitum og samfélagsmiðlum.
Myrkvi er listamannsnafn Magnúsar Arnar Thorlacius sem stökk fram á sjónarsviðið árið 2014 þegar hann sigraði Músíktilraunir með hljómsveit sinni Vio, ásamt því að vera valinn besti söngvari keppninnar. Vio slógu í gegn með lagið „You Lost It“, gáfu út breiðskífuna Dive in og voru m.a. tilnefndir tvisvar til Íslensku tónlistaverðlaunanna en hljómsveitin tilkynnti nýlega væntanlega endurkomu.
Árið 2020 leit aukasjálf Magnúsar, Myrkvi dagsins ljós. Hans fyrsta lag „Sér um sig“ vakti mikla lukku og fór m.a. í 2. sæti á Vinsældalista Rásar 2. Stuttu síðar fylgdi lagið „Gamechanger“ og náði 5. sæti á sama lista. Viðburðaríkt ár, í miðjum heimsfaraldri, var kórónað með útgáfu breiðskífunnar Reflections sem hlaut góðar undirtektir.
„Villt fræ“ er nýtt lag úr Myrkvasmiðjunni sem kafar í rætur tónlistarmannsins, en hann ólst upp við að hlusta á söngvaskáld og spila á klassískan gítar. Íslenskur texti er hornsteinn lagsins og segir frá fræi sem þráir að vaxa og kynnast yl sólarinnar. „Mig langaði að semja eitthvað hjartahreint sem gæti glitrað án nokkurs glamúrs. Eitthvað sem kæmi beint frá herberginu til hlustandans“, segir Magnús í fréttatilkynningu.
Smáskífuna prýðir kötturinn Stefán Thorlacius, sem er búinn að taka yfir samfélagsmiðla Myrkva.