Afmælisbörn 18. febrúar 2023

Halldór Haraldsson

Glatkistan hefur að þessu sinni þrjú afmælisbörn á skrá:

Halldór Haraldsson píanóleikari er áttatíu og sex ára gamall í dag. Hann nam hér heima og í London, hefur leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kennt á píanó í og gegnt stöðu skólastjóra Tónlistarskólans í Reykjavík, gegnt ábyrgðarstörfum fyrir FÍT og önnur félagssamtök hér heima og erlendis svo fáein atriði séu tíunduð, hann hefur hlotið fálkaorðuna og heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir störf sín. Hann hefur einnig gefið út nokkrar plötur þar sem píanóleik hans er að finna.

Dr. Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarskríbent er fjörutíu og níu ára gamall. Hann var í einhverjum hljómsveitum á yngri árum (t.d. Maunum) en er fyrst og fremst þekktur fyrir tónlistarumfjöllun sína í Morgunblaðinu frá 1999, dagskrárgerð á Rás 2 og hefur auk þess skrifað bækur um tónlist. Arnar gegnir í dag stöðu aðjúnkts í tónlistarfræðum við Háskóla Íslands og er einn umsjónamanna hlaðvarpsins Bestu plötunnar.

Þá á Birkir Fjalar Viðarsson trommuleikari og söngvari frá Reyðarfirði fjörutíu og fimm ára afmæli á þessum degi. Birkir Fjalar hefur mestmegnis verið viðloðandi sveitir í harðari kantinum, fyrst fyrir austan með sveitum eins og Kristur drepinn og Gleðisveitinni Döðlum en síðar I adapt, Bisund, Stjörnukisa, Celestine og mörgum öðrum.

Vissir þú að hljómsveit Jan Morávek var fyrsta hljómsveitin sem lék í Vetrargarðinum í Tívolíinu í Vatnsmýrinni?