Söngfélag Flateyrar (1882-87)

Söngfélag Flateyrar (Söngfjelag Flateyrar) starfaði að líkindum um fimm ára skeið undir lok nítjándu aldar (á árunum 1882-87) en slík félög voru þá að ryðja sér til rúms um land allt.

Tvennar sögur fara af því hver stofnaði söngfélag þetta, annars vegar er talað um Jónas [?] iðnaðarmann sem lært hafði hjá nafna sínum Jónasi Helgasyni (sem þá var fremstur söngfræðinga hér á landi) í Reykjavík, hins vegar að Árni Sveinsson hafi stofnaði félagið og stýrt samsöngnum. Ekki liggur fyrir hvort söngfélagarnir komu einhverju sinni fram opinberlega eða hvort einungis var sungið á söngfundum.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um Söngfélag Flateyrar.