
Gullý Hanna Ragnarsdóttir
Þrjú afmælisbörn koma við sögu á afmælislista Glatkistunnar að þessu sinni:
Gunnar Ólason söngvari og gítarleikari Skítamórals frá Selfossi er fjörutíu og sjö ára gamall í dag. Auk þess að vera einn af Skímó-liðum hefur hann leikið með sveitum eins og Vinum Sjonna, Galeiðunni, Plasti, Spark, Loðbítlum, Nepal og Poppins flýgur. Auk þess var Gunnar annar helmingur dúettsins Two tricky sem var fulltrúi Íslands í Eurovision 2001.
Gullý Hanna (Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir) er sjötíu og fjögurra ára gömul í dag en hún hefur starfað í Danmörku síðan um miðjan áttunda áratuginn og sent frá sér fjölmargar plötur sem innihalda eins konar poppaða vísnatónlist. Gullý Hanna hefur sungið bæði á íslensku og dönsku á plötum sínum og má t.a.m. heyra á þeim lög eins og Hægt og hljótt og Söknuður, með dönskum textum.
Og að síðustu er hér nefndur Örnólfur Thorlacius raftónlistarmaður en hann er fjörutíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Örnólfur hefur mest starfað einn í þessum geira tónlistarinnar en einnig eitthvað í samstarfi með öðru tónlistarfólki, hann hefur gefið út efni og gengið undir ýmsum nöfnum s.s. Ozy/Ozzy, Figment creepers, Early grooves, Hugh Jazz, Fuzzball reject o.fl.
Vissir þú að lengi voru haldnir dansleikir í Listamannaskálanum við Kirkjustræti en húsið var rifið árið 1968?