Afmælisbörn 26. maí 2023

Vilberg Vilbergsson

Sex afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:

Villi Valli (Vilberg Vilbergsson) hárskeri og tónlistarmaður á Ísafirði er níutíu og þriggja ára á þessum ágæta degi. Villi Valli, sem upphaflega kemur reyndar frá Flateyri, var mikill djassvakningarmaður á Vestfjörðum og starfrækti margar sveitir sem sérhæfðu sig í þeirri tegund tónlistar, meðal sveita sem hann lék með og starfrækti voru Hljómsveit Vilbergs Vilbergssonar, VV kvartett, Villi, Gunnar og Haukur, M.G. tríó og S.V.O. tríóið en einnig stjórnaði hann Lúðrasveit Ísafjarðar svo annars konar dæmi séu tekin. Tvær plötur hafa komið út með Villa Valla.

Ólafur Sigurðsson trommuleikari er sjötíu og þriggja ára gamall í dag en hann lék með mörgum þekktum hljómsveitum hér fyrrum. Meðal sveita sem hann gerði garðinn frægan með má nefna Pops, Zoo, Rosie, Tatara, Tilveru, Eik, Kamarorghesta og Pelican.

Sigurður G. Daníelsson organisti, kórstjóri og tónlistarkennari er sjötíu og níu ára gamall í dag. Sigurður stjórnaði á sínum tíma allmörgum kórum á landsbyggðinni s.s. Samkór Tálknafjarðar og Samkórnum Björk, og starfaði þá sem tónlistarkennari og -skólastjóri auk organista en hann hefur jafnframt alloft komið fram sem undirleikari með kórum og einsöngvurum. Sigurður hefur sent frá sér eina plötu með dinner tónlist.

Gunnar Páll Ingólfsson var fæddur þennan dag 1934, hann lék á gítar með fjölda hljómsveita á yngri árum og á miðjum aldri varð hann frumkvöðull hér á landi í að leika á skemmtara á hótelum og öldurhúsum borgarinnar. Gunnar Páll samdi líka tónlist og hafa einhver þeirra komið út á plötum en ekkert frumsamið efni var þó að finna á tveimur plötum sem hann sendi frá sér í kringum aldamótin. Gunnar Páll lést 2019.

Þór Nielsen (1941-2020) söngvari og gítarleikari átti afmæli á þessum degi, hann söng og lék á gítar með fjölda hljómsveita og þeirra á meðal má nefna sveitir eins og J.J. quintet, Junior kvintett, Tígris sextettinn, Pónik, Venus kvartettinn, Örvartríóið, Þórsmenn, City sextett, Ásar, Glæsir, Flamingo kvartetttinn og Tríó Elfars Berg svo aðeins hluti þeirra sé hér upptalinn.

Viðar Alfreðsson horn- og trompetleikari (f. 1936) hefði líka átt afmæli þennan dag. Viðar lék með mörgum þekktum danshljómsveitum hér fyrrum s.s. Hljómsveit Svavars Gests og Hljómsveit Björns R. Einarssonar, og einnig á mörgum plötum allt þar til hann lést árið 1999. Ein plata leit dagsins ljós með Viðari, hún kom út árið 1980 og hét Viðar Alfreðsson spilar og spilar.

Vissir þú að um miðjan áttunda áratug síðustu aldar starfaði hljómsveit á Dalvík undir nafninu Fló?