Afmælisbörn 17. apríl 2024

Eyjólfur Kristjánsson

Glatkistan hefur að geyma upplýsingar um eitt afmælisbarn í tónlistargeiranum á þessum degi:

Eyjólfur Kristjánsson söngvari, lagasmiður, gítarleikari og skemmtikraftur er sextíu og þriggja ára gamall í dag. Eyfi var á tímabili áberandi í jólalaga- og söngvkeppnaflóðunum, söng t.a.m. lög eins eins og Gleðileg jól allir saman, Draum um Nínu og Álfheiði Björk sem allir þekkja en þekktastur er hann þó fyrir framlag sitt sem sólóisti og með Bítlavinafélaginu og Hálfu í hvoru þar sem hann vakti athygli fyrst. Hann hefur þó einnig sungið með fjölmörgum öðrum hljómsveitum fyrr og síðar, og má þar nefna sveitir eins og Púkó og Gumma, Andrómedíu, Texas tríóið, Vísnavini, Vox, Ullarhattana og Íslands einu von.

Vissir þú að Herbert Guðmundsson var fyrstur íslenskra söngvara til að ná toppsætinu á vinsældarlista Rásar 2?