Hitt liðið (1988-89)

Hitt liðið

Hljómsveit sem bar nafnið Hitt liðið starfaði um veturinn 1988-89 og var skipuð meðlimum úr Foringjunum og Stuðkompaníinu, sveitin lék í nokkur skipti á skemmtistöðum höfuðborgarsvæðisins.

Þórður Bogason var söngvari Hins liðsins en ekki finnast upplýsingar um aðra meðlimi hljómsveitarinnar eða hljóðfæraskipan og er því hér með óskað eftir þeim.