Afmælisbörn 19. apríl 2024

Unnur María Bergsveinsdóttir

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar þrjú:

Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari er sextíu og sex ára gömul, hún lauk einleikaraprófi á píanó frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og framhaldsnámi í Bandaríkjunum. Hún var ráðin tónlistarstjóri Hörpunnar þegar hún opnaði og gegndi því starfi þar til fyrir um ári síðan þegar hún tók við starfi óperustjóra Íslensku óperunnar. Steinunn Birna hefur gefið út plötur ein og í samstarfi við aðra hljóðfæraleikara, leikið á ýmsum tónleikum hér heima og erlendis, starfað fyrir Ríkisútvarpið og Morgunblaðið, og haldið utan um tónlistarhátíðina Reykholtshátíð, svo dæmi séu tekin.

Unnur María Bergsveinsdóttir sagnfræðingur og bassaleikari Brúðarbandsins er fjörutíu og sex ára gömul á þessum degi. Hljómsveit hennar, Brúðarbandið, gaf út plötuna Meira! árið 2004 en síðan hefur lítið spurst til Unnar Maríu á tónlistarsviðinu en þeim mun meira á sirkussviðinu.

Og að síðustu er hér nefnd Berglind Häsler sem í dag fagnar fjörutíu og sex ára afmæli sínu. Berglind hefur starfað sem hljómborðsleikari í hljómsveitinni Skakkamanage en hún lék einnig á trommur í dúettnum Létt á bárunni sem hún starfrækti ásamt eiginmanni sínum Svavari Pétri Eysteinssyni sem einnig var í Skakkamanage en báðar sveitirnar gáfu út plötur. Þau hjónin starfræktu einnig menningarsetrið Havarí sem í dag er fyrst og fremst vefverslun.

Vissir þú að Ellý í Q4U hefur sungið bakraddir á plötu með Á móti sól?