Afmælisbörn 20. apríl 2024

Kristín Lárusdóttir

Tvö afmælisbörn úr íslensku tónlistarlífi er á lista Glatkistunnar að þessu sinni:

Sigrún Jónsdóttir söngkona er níutíu og fjögurra ára gömul í dag, Sigrúnu þekkja margir sem eina af fyrstu dægurlagasöngkonum Íslands, hún söng inn á fjölda platna og oft í samstarfi við aðra söngvara eins og Alfreð Clausen og Ragnar Bjarnason, þá söng hún með ýmsum þekktum hljómsveitum s.s. KK-sextettnum, Nóva-tríóinu, Hljómsveit Karls Jónatanssonar, Kvintett Gunnars Ormslev og fjölda annarra sveita, hún var jafnframt ein af Öskubuskum. Þekktustu lög Sigrúnar eru Fjórir kátir þrestir, Marína og Lukta-Gvendur, sem hún söng ásamt Alfreð Clausen.

Kristín Lárusdóttir sem gengur oft undir nafninu Selló Stína fagnar fjörutíu og níu ára afmæli sínu á þessum degi. Selló Stína á að baki nokkrar sólóplötur en hún hefur jafnframt leikið inn á plötur með ýmsum hljómsveitum og listamönnum eins og Sigur rós, Svavari Knúti, Amiinu, Pétri Ben., Kolrössu krókríðandi o.fl. Hún hefur einnig starfað með hljómsveitinni Fimm í tangó.

Vissir þú að Álafosskórinn var stofnaður af starfsfólki ullarverksmiðjunnar í Mosfellssveit árið 1980?