Afmælisbörn 22. apríl 2024

Hafsteinn Guðmundsson

Sjö afmælisbörn koma við sögu gagnagrunns Glatkistunnar að þessu sinni:

Páll Kristinn Pálsson söngvari hljómsveitarinnar Fjörefnis er sextíu og átta ára gamall á þessum degi, hann er klárlega þekktastur fyrir að syngja lagið Dansað á dekki sem fyrrgreind hljómsveit gaf út 1979. Páll hafði áður verið í hljómsveitinni Dögg en hann átti síðar eftir að hasla sér völl sem rithöfundur.

Matthías M.D. Hemstock trommu- og slagverksleikari er fimmtíu og sjö ára gamall í dag, hann hefur þótt ómissandi þegar kalla hefur þurft til slagverksleikara til að leika inn á plötur en þar má t.d. nefna plötur Jóels Pálssonar, Skúla Sverrissonar, Hilmars Jenssonar, Tómsar R. Einarssonar, Ólafar Arnalds, Jóhanns Jóhannssonar o.fl. Matthías hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Todmobile, Havanabandinu, Kerfli, Rússíbönum, Saltfiskssveit Villa Valla og Caput.

Þriðja afmælisbarn dagins er tónlistarmaðurinn Steinar (Baldursson) sem er tuttugu og níu ára gamall á þessum degi en hann gaf út plötuna Beginning árið 2013 og vakti fyrir það mikla athygli, þá aðeins átján ára Verzlunarskólanemi. Steinar sendi reglulega frá sér smáskífur um tíma en minna hefur farið fyrir honum síðustu árin.

Tónlistarmaðurinn Sigurður Rósi Sigurðsson frá Ísafirði er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Sigurður Rósi lék á gítar með fjölmörgum vestfirskum hljómsveitum hér áður fyrr s.s. Náð, Ýr, Danshljómsveit Vestfjarða, Hljómsveit Ásgeirs Sigurðssonar og Gancia áður en hann fluttist til Nýja Sjálands en þar hefur hann búið síðustu áratugina, leikið þar með hljómsveitum og komið fram sem trúbador.

Hafsteinn Guðmundsson fagottleikari fagnar í dag sjötíu og sjö ára afmæli sínu. Hann var einn fyrstur Íslendinga til að ljúka námi í fagottleik en hann nam hér heima og í Bandaríkjunum, hann var fyrsti fagottleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um árabil og lék því einleik margoft með sveitinni og á plötum hennar en hefur jafnframt leikið á plötum fjölda annarra tónlistarmanna. Hafsteinn hefur einnig leikið með fjölda kammersveita í gegnum tíðina.

Haraldur Guðni Bragason organisti, tónlistarkennari og -skólastjóri, kórstjóri og tónlistarmaður átti afmæli á þessum degi en hann lést árið 2009. Haraldur var fæddur árið 1947 á Vopnafirði en eftir tónlistarnám í Reykjavík og Þýskalandi hóf hann að kenna tónlist víða um land og starfaði þá gjarnan einnig sem organisti og kórstjórnandi. Hann hafði á yngri árum sínum starfað með ballhljómsveitum en hann gaf einnig út tvær plötur með frumsaminni tónlist síðar.

Þá er hér að síðustu nefndur Halldór Ingi Andrésson tónlistaráhugamaður og blaðamaður (fæddur 1954) sem skrifaði um tónlist um árabil. Halldór Ingi starfaði einnig að tónlist með margvíslegum öðrum hætti, m.a. sem útgáfustjóri hjá Fálkanum, hann var verslunarstjóri hjá Japis og rak um tíma jafnframt sjálfur plötubúð auk þess að starfa við dagskrárgerð í útvarpi svo dæmi séu nefnd. Halldór Ingi lést árið 2021.

Vissir þú að engin kona lék á plötunni Áfram stelpur sem kom út 1975 en hún var helguð baráttu kvenna.