Afmælisbörn 25. apríl 2024

Ása Önnu Ólafsdóttir

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu dagsins:

Skagamaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson dagskrárgerðarmaður á Rás 2 er fimmtíu og fimm ára gamall í dag, hann hefur kynnt tónlist, íslenska sem erlenda, í útvarpsþáttum sínum á Ríkisútvarpinu, langlífastur þeirra er Rokkland en hann hefur verið á dagskrá í yfir tutttugu ár. Hann hefur annast sviðskynningu á Músíktilraunum um árabil en einnig leikið á gítar í nokkrum Skagatengdum hljómsveitum, þeirra á meðal má nefna sveitirnar Ópal og Magnús.

Hér er svo einnig nefndur Jens Ólafsson (Jenni í Brain police) söngvari frá Akureyri sem er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi en auk þess að syngja með Brain police hefur hann einnig gert garðinn frægan með hljómsveitum eins og Toy machine, Best fyrir, Hot damn og Gimp.

Síðasta afmælisbarn dagsins að þessu sinni er tónlistarkonan og tónskáldið Ása Önnu Ólafsdóttir en hún fagnar tuttugu og fjögurra ára afmæli sínu á þessum degi. Ása sem gengur einnig undir nafninu Asalaus í tónlistinni á að baki sólóplötur og smáskífur undir því nafni en hún var jafnframt í hljómsveitinni Ateria sem sigraði Músíktilraunir árið 2018, sem einnig hefur sent frá sér efni og þar áður í hljómsveitinni Kyrrð.

Vissir þú að Ragnheiður Gröndal sigraði Samfés söngkeppnina 15 ára gömul?