
Hljómsveit Gunnars Ormslev
Gunnar Ormslev saxófónleikari starfrækti nokkrar hljómsveitir í eigin nafni frá sjötta og fram á áttunda áratug síðustu aldar en þekktust þeirra sveita var án nokkurs vafa sú sem fór til Sovétríkjanna á heimsmót æskunnar og vakti þar mikla athygli en Haukur Morthens var þá söngvari sveitarinnar.
Gunnar hafði starfrækt hljómsveit (GO kvintett) á síðari hluta fimmta áratugarins og svo aðra sem starfaði árið 1950 undir nafninu Kvartett Gunnars Ormslev en upp frá því rak hann nokkuð samfellt sveitir næstu árin sem hér eru kallaðar Hljómsveit Gunnars Ormslev en þær voru afar misjafnar að stærð. Fyrst í stað var þessi hljómsveit tríó en ekki liggja fyrir upplýsingar um skipan þeirrar sveitar, ári síðar (1951) voru meðlimir hennar fjórir en það voru Steinþór Steingrímsson píanóleikari, Guðmundur Steingrímsson trommuleikari og Bragi Hlíðberg harmonikkuleikari sem léku með Gunnari þá en Steinþór og Guðmundur höfðu einmitt starfað með honum í GO kvintettnum nokkrum árum fyrr. Svo virðist sem þessi sveit hafi mestmegnis leikið á landsbyggðinni um helgar.
Næstu tvö árin er lítið vitað um hljómsveit Gunnars annað en að svo virðist sem að yfirleitt hafi verið um tríó að ræða, 1952 lék sveit Gunnars (sextett) inn á plötu með söngvaranum Alfreð Clausen en á henni léku með honum Björn R. Einarsson básúnuleikari, Ólafur Gaukur Þórhallsson gítarleikari, Jón Sigurðsson bassaleikari, Magnús Pétursson píanóleikari og Guðmundur R. Einarsson trommuleikari – það mun vera eina platan sem kom út með leik Gunnars á meðan hann lifði.
Árið 1954 var Gunnar kominn með nýja sveit sem lék mest í Breiðfirðingabúð en einnig eitthvað víðar, Jóhann Gestsson var söngvari þessarar sveitar en að öðru leyti liggja ekki fyrir neinar upplýsingar um þessa sveit, hvorki stærð hennar né hljóðfæra- og meðlimaskipan. Áfram starfrækti hann sveit eða sveitir þó ekki sé víst að um samfellu sé þar að ræða, árið 1955 lék t.a.m. sveit í hans nafni á skemmtunum þar sem ungir dægurlagasöngvarar komu fram og reyndu fyrir sér en rokkið var þá um það leyti að ryðja sér til rúms. Árið 1956 söng Ragnar Bjarnason (og lék hugsanlega einnig á trommur) með sveit Gunnars sem lék nokkuð í Breiðfirðingabúð en það var svo árið 1957 sem hljómsveit í nafni hans sló í gegn ef svo mætti segja.

Hljómsveit Gunnars Ormslev og Haukur Morthens
Sú sveit var skipuð þeim Gunnari sem lék á saxófón, Guðjóni Inga Sigurðssyni trommuleikara, Sigurbirni Ingþórssyni bassaleikara, Árna Elfar píanóleikara og Viðari Alfreðssyni trompetleikara en Haukur Morthens var söngvari hennar. Hljómsveitin hafði starfað um tíma og hafði Sigrún Jónsdóttir sungið með henni í Breiðfirðingabúð auk þess sem sveitin kom fram á rokktónleikum Tony Crombies um vorið 1957 ásamt Helenu Eyjólfsdóttur bráðungri söngkonu. Einnig lék sveitin undir söng Erlu Þorsteins á tónleikum en hún dvaldi hér á Íslandi um sumarið. Þegar sveitinni bauðst að fara á svokallað heimsmót æskunnar sem haldið var í Sovétríkjunum sálugu um sumarið gripu þeir félagar tækifærið og varð þetta sannkölluð frægðarför því sveitin var heiðruð þar fyrir frammistöðu sína en um eins konar hljómsveitakeppni var að ræða. Mikið var gert úr ferð sveitarinnar til Sovétríkjanna og jafnvel Morgunblaðið gerði henni ágæt skil þannig að sveitin naut töluverðra vinsælda eftir að hún kom aftur heim að ferð lokinni, og lék við mikla aðsókn í Tjarnarcafe um haustið.
Sveitin starfaði áfram líklega nokkuð óbreytt um tíma og m.a. lék hún undir söng Noru Brocksted á tónleikum um vorið 1958, um sumarið fóru þeir félagar og Haukur Morthens til Danmerkur og Svíþjóðar þar sem þeir dvöldu og störfuðu í á þriðja mánuð en veturinn eftir sungu þau Helena Eyjólfsdóttir og Gunnar Páll Ingólfsson með sveitinni í Framsóknarhúsinu (síðar Glaumbæ) og allt fram á sumarið 1959 þegar hún hætti störfum. Þá var sveitin reyndar orðin nokkuð breytt að skipan þarna undir lokin en með Gunnari voru þá Gunnar Sigurðsson bassaleikari, Gunnar Mogensen trommuleikari, Magnús Ingimarsson píanóleikari en áðurnefndur Gunnar Páll lék á gítar með sveitinni auk þess að syngja. Einnig virðist sem Sverrir Garðarsson trommuleikari hafi starfað með sveitinni um tíma þarna.

Hljómsveit Gunnars Ormslev 1962
Gunnar virðist ekki hafa starfrækt hljómsveit næstu þrjú árin en árið 1962 lék sveit í hans nafni í Næturklúbbnum svokallaða (Glaumbæjarhúsnæðinu) þar sem söngkona að nafni Sigrún söng með þeim (líklega Sigrún Jónsdóttir), um sumarið lék sveitin hins vegar á Hótel Borg og þar skipuðu sveitina auk Gunnars þeir Reynir Sigurðsson víbrafónleikari, Edwin Kaaber gítarleikari, Guðmundur Ingólfsson píanóleikari og Pétur Östlund trommuleikari – Anna Vilhjálmsdóttir söng með þeim félögum og einnig söng Elín Bachmann eitthvað með þeim um sumarið. Síðsumars fluttu þeir sig aftur í Næturklúbbinn sem nú gekk undir nafninu Glaumbær, en störfuðu ekki lengi þar heldur hættu fljótlega störfum.
Enn birtist hljómsveit í nafni Gunnars Ormslev árið 1965 en sú sveit var skammlíf, lék á áramótadansleik í Tjarnarcafe og svo ekkert meira, ári síðar fékk Gunnar nokkra hljóðfæraleikara með sér til að leika undir söng Ellu Fitzgerald á nokkrum tónleikum en engar upplýsingar er að finna um skipan þeirrar sveitar. Loks setti Gunnar saman hljómsveit sumarið 1971 á Hótel Borg en heimildir um þá sveit eru afar takmarkaðar – Kristbjörg Löve og Gunnar Páll Ingólfsson sungu með sveitinni, þó ekki saman en engar aðrar upplýsingar er að finna um þessa sveit.
Ekki er að finna frekari upplýsingar um sveitir Gunnars Ormslev en heimildir eru fyrir því að Svavar Gests trommuleikari og Carl Möller píanóleikari hafi á einhverjum tímapunkti/um leikið með sveit/um Gunnars, ekki liggur þó fyrir hvenær. Hér að ofan er plata nefnd sem hljómsveit Gunnars lék á ásamt Alfreð Clausen en eftir andlát Gunnars kom út tvöföld plata – Jazz í 30 ár, til að heiðra minningu hans og á henni er að finna fáein lög sem sveitir hans léku.














































