Tilfinning (1971-72 / 1973-74)

Saga hljómsveitarinnar Tilfinningar er eilítið flókin en hún skiptist í þrjú tímaskeið. Fyrsta skeið sveitarinnar spannaði um eitt ár en Tilfinning var stofnuð sumarið 1971 í aðdraganda hljómsveitakeppni sem haldin var í Húsafelli þá um verslunarmannahelgina en þar tók sveitin þátt. Engar sögur fara af árangri sveitarinnar í Húsafelli en hún starfaði í um eitt…

Afmælisbörn 13. desember 2017

Í dag eru tveir tónlistarmenn á skrá Glatkistunnar sem eiga afmæli: Lárus Halldór Grímsson tónskáld, hljómsveitastjórnandi og hljómborðs- og flautuleikari er sextíu og þriggja ára á þessum degi. Hann nam hér heim og í Hollandi, lék með mörgum hljómsveitum hér á árum áður s.s. Sjálfsmorðssveit Megasar, Súld, Með nöktum, Þokkabót, Eik og Deildarbungubræðrum og lék…

Afmælisbörn 12. desember 2017

Glatkistan hefur á skrá sinni í dag þrjú tónlistartengd afmælisbörn: Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór á stórafmæli í dag en hann er fimmtugur, hann nam söng hér heima og á Ítalíu, hefur starfað m.a. í Íslensku óperunni, með Frostrósum og Mótettukórnum, auk þess að syngja á plötum annarra tónlistarmanna. Jóhann Friðgeir hefur gefið út fjórar sólóplötur.…

Jólablús á Hilton 21.12. kl. 21

Blúsfélag Reykjavíkur stendur fyrir Jólablús með Vinum Dóra á Vox club á Hótel Hilton fimmtudagskvöldið 21. desember nk. kl. 21:00. Jólablús Vina Dóra hefur notið mikilla vinsælda árum saman, skemmtilegur og allt öðru vísi en aðrir viðburðir á þessum árstíma. Jólablúsinn er kærleiksboðskapur og gleðistund sem enginn vill missa af Vinir Dóra eru Halldór Bragason…

Afmælisbörn 11. desember 2017

Í dag er eitt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: Það er Guðlaugur Kristinn Óttarsson tónlistarmaður en hann er sextíu og þriggja ára gamall. Hann lék sem gítarleikari í fjölmörgum hljómsveitum eins og Steinblómi, Lótusi, INRI, Kukli, Elgar sisters, Sextett, Current 93, Galdrakörlum og Þey en síðast talda sveitin er kannski sú þekktasta. Guðlaugur hefur einnig gefið…

Afmælisbörn 10. desember 2017

Nokkur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Einar Hólm söngvari og trymbill er sjötíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Einar söng inn á eina litla plötu 1973 en var trommuleikari í mörgum hljómsveitum hér áður s.s. Pónik, Stuðlatríóinu, Næturgölum og Hljómsveit Ólafs Gauks svo einhverjar sé nefndar. Einar er faðir Ólafs Hólm…

Afmælisbörn 9. desember 2017

Tónlistartengdu afmælisbörn dagsins eru þrjú talsins að þessu sinni: Björgvin Franz Gíslason leikari er fertugur í dag og fær því titilinn stórafmælisbarn dagsins. Björgvin Franz var barnastjarna og vakti fyrst athygli fyrir söng sinn í Óla prik syrpu sem naut vinsælda fyrir margt löngu en hefur síðan aðallega verið tengdur barnatónlist, t.d. Benedikt búálfi, Stundinni…

Afmælisbörn 8. desember 2017

Á þessum degi eru afmælisbörn Glatkistunnar tvö: Guðni (Þórarinn) Finnsson bassaleikari Ensímis er fjörutíu og sjö ára í dag. Auk þess að vera bassaleikari í Ensími hefur Guðni leikið með hljómsveitum eins og Áhöfninni á Húna II, Bikarmeisturunum, Dr. Spock, Rass, Pondus, Hispurslausa kvartettnum og mörgum fleirum. Guðni hefur meira að segja farið sem einn…

Afmælisbörn 7. desember 2017

Tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú í þetta skipti: Jórunn Viðar tónskáld hefði orðið níutíu og níu ára gömul í dag en hún lést fyrr á þessu ári. Jórunn nam tónsmíðar í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Austurríki á sínum tíma og samdi fjöldann allan af þekktum lögum s.s. Það á að gefa börnum brauð, Kall sat undir…

Theódór Árnason (1889-1952)

Theódór Árnason var framan af þekktastur fyrir fiðlufærni sína en síðar vann hann fórnfúst starf sem kórstjórnandi og söngkennari í byggðum sem fram að því höfðu ekki haft kórsönghefð. Theódór fæddist 1889 á Akureyri en ólst að mestu upp á Seyðisfirði þar sem hann kynntist tónlistinni fyrst, þar var hann m.a. í fiðlukvartett á unglingsárunum…

Thule 2,5% (1972)

Upplýsingar um hljómsveitina Thule 2,5% óskast sendar Glatkistunni en hún var starfandi á Eiðum 1972, að öllum líkindum við Alþýðuskólann. Meðlimir sveitarinnar voru þeir Friðjón Jóhannsson bassaleikari og söngvari, Steinar Björgvinsson trommuleikari og Þorvarður Bessi Einarsson gítarleikari.

Thule [2] (1995-97)

Fremur takmarkaðar heimildir er að finna um svartmálmssveit að nafni Thule, sem mun hafa verið starfandi á síðari hluta tíunda áratugar síðustu aldar, líkast til á árunum 1995-97. Thule tók upp nokkur lög sem voru löngu síðar gefnar út á plötunni Anthology er kom út í Bandaríkjunum á geislaplötuformi (2008) og samkvæmt upplýsingum tengdri þeirri…

Thule [1] (1969)

Thule var skammlíf hljómsveit, starfandi í nokkra mánuði árið 1969 í Réttarholtsskóla. Engar upplýsingar er að finna um meðlimi þessarar sveitar og óskast þær því sendar Glatkistunni.  

Three monkeys (1995)

Tríóið Three monkeys starfaði á höfuðborgarsvæðinu 1995 og keppti þá um vorið í Músíktilraunum Tónabæjar. Meðlimir sveitarinnar voru þá Pálmi Gunnarsson harmonikkuleikari, Oddur Carl Thorarensen söngvari og Emil Hreiðar Björnsson gítarleikari. Three monkeys komust ekki áfram í úrslit Músíktilrauna og varð að öllum líkindum skammlíf sveit.

Thorlacius (1987)

Hljómsveitin Thorlacius (Thorlasíus) starfaði á Norðfirði og keppti í hljómsveitakeppni sem haldin var í Atlavík um verslunarmannahelgina 1987. Litlar upplýsingar er að finna um þessa sveit en hún mun hafa starfað síðar undir nafninu Hálfur undir sæng, og verið nokkuð öflug þar eystra. Fyrir liggur að Guðni Finnsson bassaleikari (Dr. Spock, Ensími o.m.fl.) var í…

Thorbjörn Egner – Efni á plötum

Kardemommubærinn: sýning Þjóðleikhússins – úr leikriti Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: EXP IM 71 Ár: 1960 1. Forleikur 2. Bastían bæjarfógeti 3. Kardemommusöngurinn 4. Heyrið lagið hljóma 5. Vísa Sörensen rakara 6. Vísa Soffíu frænku 7. Kardemommulagið 8. Hvar er húfan mín 9. Við læðumst hægt 10. Ja, fussum svei 11. Við halda skulum heim á…

Thorbjörn Egner (1912-90)

Allir þekkja hinn norska Thorbjörn Egner og verk hans en þau hafa komið út um heim allan, m.a. hér á Íslandi. Honum var margt til lista lagt en auk þess að vera rithöfundur var hann liðtækur tónlistar- og myndlistamaður. Egner fæddist í Oslo 1912 og hæfileikar hans á listasviðinu komu snemma í ljós, hann lauk…

Theódór Einarsson – Efni á plötum

Kata rokkar – ýmsir Útgefandi: Kata rokkar Útgáfunúmer: KAT05 Ár: 2005 1 . Angelía 2. Berst til mín vorið 3. Báruhúsið 4. Blómið 5. Gleym mér ey 6. Á hörpunnar óma 7. Kata rokkar 8. Við gluggann 9. Hvítir svanir 10. Tvö sofandi born 11. Bréfið 12. Vinarkveðja Flytjendur: Andrea Gylfadóttir – söngur Anna Halldórsdóttir…

Theódór Einarsson (1908-99)

Laga- og textahöfundurinn Theódór Einarsson er mörgum kunnur fyrir lög sín en margir af þekktustu tónlistarmönnum landsins hafa flutt þau í gegnum tíðina. Theódór Frímann Einarsson fæddist í Leirársveitinni 1908 og var kominn á fullorðins ár þegar hann flutti inn á Akranes þar sem hann síðan bjó til æviloka, starfaði framan af við verkamannastörf en…

Thor’s hammer – Efni á plötum

Thor’s hammer – Memory / Once [ep] Útgefandi: Fálkinn Parlophone Útgáfunúmer: Odeon DP 565 Ár: 1966 1. A memory 2. Once Flytjendur: [engar upplýsingar um flytjendur]     Thor‘s hammer – If you knew / Love enough [ep] Útgefandi: Fálkinn Parlophone Útgáfunúmer: DP 567 Ár: 1966 1. If you knew 2. Love enough Flytjendur: Gunnar…

Thor’s hammer (1965-68)

Hljómsveitin Hljómar, ein vinsælasta hljómsveit allra tíma á Íslandi og sú allra vinsælasta á tímum bítla og hippa, reyndi fyrir sér í útlöndum undir meiknafninu Thor‘s hammer, hafði ekki erindi sem erfiði og sneri aftur á heimaslóðir reynslunni ríkari. Sveitin gaf þó út nokkrar smáskífur undir því nafni og hefur á síðustu árum öðlast þá…

Thule records [útgáfufyrirtæki] (1995-)

Thule records, einnig nefnt Thule musik, er útgáfufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í jaðartónlist af ýmsu tagi. Thule records var stofnuð 1995 en stofnandi þess og eigandi er Þórhallur Skúlason, sem fengist hefur við raftónlist um árabil. TMT entertainment er undirútgáfa Thule. Útgáfan hefur fyrst og fremst verið vettvangur fyrir ýmsa raftónlist, ambient- techno- og…

Afmælisbörn 6. desember 2017

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Grímur Atlason tónlistarmaður og margt annað, er fjörutíu og sjö ára á þessum degi. Grímur hefur starfað með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina, verið bassaleikari í sveitum eins og Drep, Dr. Gunni, Grjóthruni í Hólshreppi, Unun, Rosebud og Ekki þjóðinni en í dag gegnir hann starfi framkvæmdastjóra…

Afmælisbörn 5. desember 2017

Þá er komið að afmælisbörnum Glatkistunnar en að þessu sinni eru tvö á skrá: Lýður Árnason læknir og tónlistarmaður frá Flateyri er fimmtíu og fimm ára gamall, hann hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, verið í hljómsveitum á borð við Kartöflumúsunum, Vítamíni, Grjóthruni í Hólahreppi og Göglum svo fáeinar séu nefndar. Hann var einnig…

Afmælisbörn 4. desember 2017

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar eftirfarandi: Ágúst Fannar Ásgeirsson hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Jakobínurínu er tuttugu og sjö ára gamall á þessum degi. Jakobínarína vann sér meðal annars til frægðar á sínum tíma að vinna Músíktilraunir (2005) en eftir að sveitin hætti árið 2009 hefur lítið spurst til Ágústs. Hann hefur þó starfað með hljómsveitinni Kosijama. Sigurður…

Afmælisbörn 3. desember 2017

Afmælisbörn dagsins eru tvö á þessum degi: Pétur Östlund trommuleikari er sjötíu og fjögurra ára í dag, hann lék með mörgum af þekktustu sveitum bítlatímabilsins og eru Hljómar og Óðmenn þeirra þekktastar en einnig með sveitum eins og Hljómsveit Finns Eydal, Hljómsveit Gunnars Ormslev, Musica prima og Útlendingahersveitinni. Hann var síðar kunnari fyrir djasstrommuleik og…

Afmælisbörn 2. desember 2017

Á þessum degi koma tvö afmælisbörn við sögu á Glatkistuvefnum: Tónlistarmaðurinn Toggi (Þorgrímur Haraldsson) er þrjátíu og átta ára, hann hefur gefið út tvær sólóplötur en er e.t.v. þekktastur fyrir að hafa samið lagið Þú komst við hjartað í mér sem bæðir hljómsveitin Hjaltalín og söngvarinn Páll Óskar hafa gert sígilt. Ragnar Sólberg (Rafnsson) eða…

Afmælisbörn 1. desember 2017

Afmælisbörn fullveldisdagsins eru eftirfarandi: Bakkgerðingurinn (Guðmundur) Magni Ásgeirsson söngvari Á móti sól er þrjátíu og níu ára gamall á þessum degi, Magni hefur einnig sungið með hljómsveitum eins og Shape, gefið út sólóplötur og sungið í undankeppnum Eurovision svo eitthvað sé nefnt, Magni hlaut sína fimmtán mínútna alþjóðafrægð þegar hann tók þátt í Rock star…

Afmælisbörn 30. nóvember 2017

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fimm á þessum degi: Pálína Vagnsdóttir söngkona frá Bolungarvík er fimmtíu og þriggja ára gömul, hún er af mikilli tónlistarfjölskyldu frá Bolungarvík, söng m.a. með hljómsveitinni Septu og hefur sungið inn á nokkrar plötur, þar má nefna plötuna Hönd í hönd: uppáhalds lögin hans pabba, sem hún og systkini hennar gáfu út…

Terso (1967-68)

Hljómsveit sem bar heitið Terso var starfandi í Austurbæjarskóla, að öllum líkindum 1967 og 68. Meðlimir þessarar sveitar, sem eðli málsins samkvæmt voru ungir að árum, voru Gunnar Hermannsson bassaleikari, Þorvaldur Ragnarsson gítarleikari [?], Júlíus Agnarsson gítarleikari [?] og Ásgeir Óskarsson trommuleikari. Sagan segir að Ásgeir hafi í fyrstu ekki fengið inngöngu í sveitina þar…

Teppið hennar tengdamömmu (um 1990)

Teppið hennar tengdamömmu var eins konar angi af Dúkkulísunum sem starfað hafði nokkrum árum fyrr, reyndar er ekki alveg ljóst hvenær sveitin starfaði en það hefur væntanlega verið á síðari hluta níunda áratugar síðustu aldar eða fyrri hluta þess tíunda. Teppið hennar tengdamömmu skipuðu þær Harpa Þórðardóttir hljómborðsleikari, Guðbjörg Pálsdóttir trommuleikari og Gréta Sigurjónsdóttir gítarleikari,…

Tennurnar hans afa – Efni á plötum

Tennurnar hans afa – Dömur mínar og herrar, látið eins og heima hjá ykkur [snælda] Útgefandi: Spé B.B. / T.h.a. Útgáfunúmer: [engar upplýsingar] Ár: 1991 1. Amma 2. Haraldur fór til Vestmannaeyja 3. Halli 4. Sólmundur síglaði 5. Lenni leiðinlegi 6. Mói stálhjarta 7. Gwarligg 8. Gefð‘ enni magnyl 9. Landinn 10. Sívert Pervertsen Flytjendur:…

Tennurnar hans afa (1988-95)

Tennurnar hans afa (T.H.A.) vöktu nokkra athygli á sínum tíma með tveimur lögum, sveitin gaf út snældu sem er að öllum líkindum fyrsta rappplatan (-snældan) hérlendis. Tennurnar hans afa var ekki eiginleg starfandi sveit heldur fremur samstarf þriggja félaga en þeir voru þó aldrei nema tveir í senn. Sögu þeirra má rekja aftur til vorsins…

Textar (1965-66)

Hljómsveitin Textar var ein af mörgum bítlasveitum sem voru starfandi um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Varla hefði sveitin fengið þá athygli sem hún hlaut nema fyrir það að trommuleikari hennar var stúlka, Halldóra Halldórsdóttir. Og reyndar var það auglýst sérstaklega þegar sveitin kom fram. Aðrir meðlimir Texta voru Magnús Guðbrandsson gítarleikari, Benedikt Torfason [söngvari…

Texas two step (1995-97)

Texas two step var kántrísveit sem spilaði nokkuð á öldurhúsum á árunum 1995-97, en sveitin var um tíma eins konar húshljómsveit á Feita dvergnum. Um var að ræða kvartett og voru meðlimir hans Þröstur Jóhannsson gítarleikari, Kjartan Þórisson trommuleikari, Valgeir [?] söngvari og Jóhann Guðmundsson bassaleikari. Um tíma lék Bandaríkjamaðurinn Denis Miller gítarleikari með sveitinni.

Texas tríóið (1980-81)

Kántrísveitin Texas tríóið var undanfari Hálfs í hvoru sem stofnuð var 1981 en Texas tríóið hafði þá starfað í um ár. Meðlimir Texas tríósins voru Eyjólfur Kristjánsson gítarleikari, Örvar Aðalsteinsson kontrabassaleikari og Ingi Gunnar Jóhannsson gítarleikari, þeir félagarnir sungu allir. Aðal hlutverk Texas tríósins og starfsvettvangur var að leika kántrítónlist í stiga á skemmtistaðnum Óðali…

Texas Jesús – Efni á plötum

Texas Jesús – Nammsla tjammsla [snælda] Útgefandi: Texas Jesús Útgáfunúmer: [án útgáfunúmers] Ár: 1993 1. Bubba bakarí 2. Ástardúettinn 3. Já, elskan 4. Skógarhöggslagið 5. Picking flowers 6. Erla og Linda 7. She sleeps alone 8. There was a frog 9. Tiny girl 10. NL 11. Ghost riders (in the sky) 12. Jones 13. Dýrin…

Texas Jesús (1993-96 / 2008-)

Hljómsveitin Texas Jesús vakti nokkra athygli á síðasta áratug 20. aldarinnar fyrir frumlegheit og skemmtilega sviðsframkomu. Sveitin sem starfaði í Keflavík hófst sem samstarf Sigurðar Óla Pálmasonar og Sverris Ásmundssonar og segir sagan að dúettinn hafi í fyrst gengið undir nafninu Ástardúettinn Siggi og Sverrir. Smám saman bættist í hópinn og vorið 1993 hlaut hann…

Tetriz [tónlistartengdur staður] (1996-97)

Tetriz var skemmtistaður staðsettur í Fischer-sundi í miðbæ Reykjavíkur en Duus hús hafði þá meðal annarra verið í sama húsnæði. Tetriz opnaði sumarið 1996 og var þar í um eitt og hálft ár en það var Júlíus Kemp kvikmyndaleikstjóri (Pís of keik) sem var þar rekstraraðili. Staðurinn bauð oft upp á lifandi tónlist, oft í…

Testimony soul band co. (1992-93)

Soulsveitin Testimony soul band co. starfaði í um tvö ár snemma á tíunda áratug liðinnar aldar. Meðlimir sveitarinnar voru Gunnar Þór Eggertsson gítarleikari, Benedikt Gunnar Ívarsson bassaleikari, Stefán B. Henrýsson hljómborðsleikari, Birgir Þórsson trommuleikari, Helena Káradóttir söngkona, Ingibjörg Erlingsdóttir söngkona og Richard Todd Lieca söngvari. Meðlimir Testimony soul band co. áttu síðar eftir að birtast…

Thalia (1978-80)

Hljómsveitin Thalia var húshljómsveit í Þjóðleikhúskjallaranum um tíma. Sveitin var stofnuð haustið 1978 og tók til starfa í Leikhúskjallaranum um áramótin 1978-79. Meðlimir sveitarinnar voru þau Sigurður Þórarinsson píanó- og orgelleikari, Garðar Karlasson gítar- og bassaleikari, Grétar Guðmundsson söngvari og trommuleikari og Anna Vilhjálmsdóttir söngkona en hún var þá nýkomin aftur heim til Íslands eftir…

Th ok Seiðbandið – Efni á plötum

Th ok Seiðbandið – Vúbbið era koma: Íslensk raf og danskvæði / Ice/electric song dances Útgefandi: Heimaútgáfan Útgáfunúmer: [engar upplýsingar] Ár: 1998 1. Ligga ligga lá / Hvaða hof? 2. Öndunarljóð / Kysstu mig sól 3. Vúbbið 4. Ólafur reið! 5. Faldafeykir 6. Hvísl ástir 7. Renna í blundi 8. Einn var draugur í þann…

Th ok Seiðbandið (1995-98)

Seiðbandið var tónlistarhópur starfandi síðari hluta tíunda áratugarins undir stjórn fjöllistamannsins Tryggva Gunnars Hansen. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær saga Seiðbandsins hefst en hópinn ber fyrst á góma í fjölmiðlum haustið 1995. Tryggvi Gunnar Hansen (Th), sem þá bjó í Grindavík, kom þá fram með sveitina í tengslum við myndlistasýningu hans og Sigríðar Völu Haraldsdóttur…

Afmælisbörn 29. nóvember 2017

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú að þessu sinni: Skáldkonan Didda eða bara Sigurlaug Jónsdóttir er fimmtíu og þriggja ára gömul á þessum degi. Segja má að hún hafi fyrst vakið athygli fyrir textann við lagið Ó Reykjavík með Vonbrigðum sem var upphafslag kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík en textar hennar hafa birst víðar. Hún gaf á sínum…

Afmælisbörn 28. nóvember 2017

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar að þessum sinni: Páll Jóhannesson einsöngvari og bóndi frá Þverá í Öxnadal er sextíu og sjö ára á þessum degi, hann nam söng á Ítalíu á sínum tíma og gaf út tvær einsöngsplötur á níunda áratug síðustu aldar þar sem hann naut m.a. aðstoðar Karlakórsins Geysis og…

Afmælisbörn 27. nóvember 2017

Afmælisbörn dagsins í Glatkistunni eru fimm talsins í dag, flest þeirra eru söngkonur: Björg Þórhallsdóttir sópran söngkona frá Akureyri er fimmtíu og þriggja ára gömul í dag. Hún hefur sent frá sér þrjár plötur, þar af eina jólaplötu. Björg var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2007. Klara Ósk Elíasdóttir, Klara í Nylon, er þrjátíu og tveggja ára…

Afmælisbörn 26. nóvember 2017

Afmælisbörn dagsins eru þrjú að þessu sinni: Sveinbjörn B. Thorarensen (Hermigervill) er fjörutíu og þriggja ára gamall. Hermigervill hefur gefið út nokkrar sóló raftónlistarplötur en hann hefur einkum sérhæft sig í vinna úr eldri tónlist, t.d. gömlum íslenskum dægurlögum í nýjum búningi. Hann hefur unnið með ýmsum tónlistarmönnum hér heima s.s. Retro Stefson, Þórunni Antoníu og…

Afmælisbörn 24. nóvember 2017

Sigurdór Sigurdórsson söngvari er sjötíu og níu ára, hann söng með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma s.s. hljómsveitum Svavars Gests og Eyþórs Þorlákssonar. Hann er þó þekktastur fyrir flutning sinn á Þórsmerkurljóðinu sem flestir þekkja undir nafninu María María. Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile er fimmtíu og þriggja ára gamall í dag. Hann er…

Afmælisbörn 23. nóvember 2017

Afmælisbörnin í dag eru fimm talsins á skrá Glatkistunnar: Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma er sjötíu og þriggja ára gamall á þessum degi. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og…