Hljómsveit sem bar heitið Terso var starfandi í Austurbæjarskóla, að öllum líkindum 1967 og 68.
Meðlimir þessarar sveitar, sem eðli málsins samkvæmt voru ungir að árum, voru Gunnar Hermannsson bassaleikari, Þorvaldur Ragnarsson gítarleikari [?], Júlíus Agnarsson gítarleikari [?] og Ásgeir Óskarsson trommuleikari.
Sagan segir að Ásgeir hafi í fyrstu ekki fengið inngöngu í sveitina þar sem hann var rauðhærður, freknóttur og kallaður Geiri, það þótti ekki fínt. Hann var síðar tekinn inn vegna trommuhæfileika sinna.