
Sigurdór Sigurdórsson
Sigurdór Sigurdórsson söngvari er sjötíu og níu ára, hann söng með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma s.s. hljómsveitum Svavars Gests og Eyþórs Þorlákssonar. Hann er þó þekktastur fyrir flutning sinn á Þórsmerkurljóðinu sem flestir þekkja undir nafninu María María.
Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile er fimmtíu og þriggja ára gamall í dag. Hann er líkast til þekktastur fyrir veru sína í Todmobile sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma en hann starfrækti einnig dúettinn Bong. Áður hafði hann verið í sveitum eins og Kolossus-band og Tappa tíkarrassi. Eyþór hefur einnig unnið við kvikmyndatónlist, stýrt upptökum og sungið barnalög. Hann hefur í seinni tíð snúið sér meira að stjórnmálum en tónlist.
Eggert Gíslason í Maus er fjörutíu og eins árs gamall á þessum degi. Hann var bassaleikari í sveitinni, sem sigraði Músíktilraunir 1994 og gaf út nokkrar plötur í kjölfarið. Minna hefur farið fyrir honum í tónlistinni hin allra síðustu ár.
Þórarinn Þeyr Rúnarsson trommuleikari Meistara dauðans er fjórtán ára gamall en þessi ungi trommuleikari hefur vakið mikla athygli með hljómsveit sinni, sem gaf út samnefnda plötu fyrir nokkru.
Einnig hefði Einar Kristjánsson óperusöngvari (f. 1910) átt afmæli á þessum degi en hann lést 1966. Einar sem var tenór starfaði allan sinn söngferil erlendis, mest í Danmörku og Þýskalandi og víst er að ef ekki hefði komið til heimsstyrjaldarinnar síðari hefði hann orðið stærra nafn. Hann söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur.