Afmælisbörn 23. nóvember 2017

Svanhildur Jakobsdóttir

Afmælisbörnin í dag eru fimm talsins á skrá Glatkistunnar:

Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma er sjötíu og þriggja ára gamall á þessum degi. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar í Keflavík. Erlingur gerðist síðar umboðsmaður Trúbrota.

Svanhildur Jakobsdóttir söng- og dagskrárgerðarkona er sjötíu og sjö ára, hún söng lengst af með hljómsveit eiginmanns síns, Sextett Ólafs Gauks, en einnig áður með öðrum sveitum. Svanhildur söng inn á fjölmargar plötur sextettsins á sínum tíma og gaf einnig út nokkrar sólóplötur sjálf.

Kjartan Hákonarson trompetleikari er þrjátíu og fimm ára, hann hefur leikið í fjölmörgum hljómsveitum eins og Jagúar og Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar en líklega eru fáar plötur í seinni tíð sem innihalda trompetleik sem hann hefur ekki leikið inn á.

Þá á Mike Pollock (Michael Dean Óðinn Pollock) sextíu og fjögurra ára afmæli í dag. Hann er auðvitað kunnastur fyrir framlag sitt með Utangarðsmönnum um og upp úr 1980 en var síðar í sveitum eins og Mögulegt óverdós, The Highland Punktry Rangers, Raflost, Viking Hillbilly Apocalypse Revenue, Bodies, Das Kapital, De Vunderfoolz, The Dirty Dan project, Frökkunum, Móral og Fræbbblunum. Þá hefur Mike gefið út nokkrar sólóplötur og leikið á plötum fjölmargra annarra listamanna.

Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari (1930) frá Akureyri hefði einnig átt afmæli þennan dag en hún lést 2012. Hún nam bæði hér heima og erlendis, var undirleikari fjölmargra kóra og einsöngvara og lék þ.a.l. inn á margar hljómplötur.